Þíamín (B1-vítamín)
Þíamín, einnig kallað B1-vítamín, er eitt af vatnsleysanlegu vítamínunum. Yfirlit
Hvert er hlutverk þíamíns?
Þíamín hefur mörg mikilvæg hlutverk í líkamanum. Nefna má að það:
- vinnur með öðrum B-vítamínum og tekur þátt í efnahvörfum við orkubúskap líkamans
- hjálpar til við að halda tauga- og vöðvavef heilbrigðum
Skortur á þíamíni veldur hörgulsjúkdómnum beri-beri sem lýsir sér með máttleysi og skertri starfsemi hjarta og tauga. Í ungum börnum geta einkenni þíamínskorts birst mjög snögglega sem hjartabilun en á Vesturlöndum hefur alvarlegur þíamínskortur nánast eingöngu greinst hjá alkóhólistum þegar saman fer meiri þörf fyrir þíamín vegna alkóhólneyslu og bætiefnasnautt fæði.
Hvað er ráðlagt?
Þíamín er vatnsleysanlegt vítamín en það þýðir að þess þarf að neyta á hverjum degi þar sem líkaminn getur ekki geymt umframmagn þíamíns.
Þörfin fyrir þíamín er háð neyslu kolvetna, alkóhóls og orku og miðast ráðleggingar við algenga orku- og kolvetnaneyslu Íslendinga.
Í hvaða matvælum er þíamín helst að finna?
Þíamín er að finna í flestum tegundum matvæla. Mest er af þíamíni í hveitiklíði og hveitikími, heilhveiti, hnetum, baunum og svínakjöti. Í öllu kjöti, fiski, mjólk og heilkornsbrauði er töluvert af þíamíni, einnig í ferskum og þurrkuðum ávöxtum og ýmsum tegundum af vítamínbættu morgunkorni.
Hvað gerist ef neytt er of mikils magns af þíamíni?
Engar heimildir eru til um eitrun af völdum stórra þíamínskammta.
Hvernig uppfylli ég þörfina fyrir þíamín?
Þíamínþörfinni á auðveldlega að vera hægt að fullnægja með því að borða fjölbreytta fæðu. Ef tekin eru fæðubótarefni, sem innihalda þíamín, er rétt að hafa í huga að taka ekki inn of mikið magn.


