Sími : 5 800 900
Selen

Selen

23.1.2008

korn.radleggingarSelen finnst í litlu magni í öllum vefjum líkamans að undanskildum fituvef. Selen er nauðsynlegur hluti ensímsins glútatíonperoxíðasa sem kemur í veg fyrir frumuskaða. Vegna þessara eiginleika telst selen til andoxunarefna.

Hvert er hlutverk selens?

Skilningur á mikilvægi og hlutverki selens hefur vaxið mikið síðastu tvo áratugi og andoxunareiginleiki þessi er nú vel þekktur. Selen gegnir mismunandi hlutverkum í líkamanum, til dæmis:

  • verndar það fjölómettaðar fitusýrur í frumum og frumuhimnum gegn þránun
  • er það hluti mismunandi ensíma, en hvaða hlutverki það þjónar nákvæmlega er ekki að fullu ljóst.

Mikill selenskortur getur valdið hjartasjúkdómum, sérstaklega hjá börnum og konum á barneignaaldri. Þessa hefur einkum orðið vart í Kína (keshan-sjúkdómur eða hjartaveila).

Hvað er ráðlagt?

Selen, ráðlagðir dagskammtar. Smella á mynd til að stækka.

Í hvaða matvælum er selen helst að finna?

Magn selens í matvælum ræðst að mestu af því hversu mikið er af seleni í jarðvegi og dýrafóðri. Bestu selengjafarnir eru fiskur, aðrar sjávarafurðir og innmatur. Kjöt, egg og mjólk innihalda nokkuð af seleni þar sem jarðvegur hér á landi er tiltölulega selenríkur. Þá er einnig nokkuð af seleni í kornmat og spergli en brasilíuhnetur eru sérstaklega selenríkar.

Hvað gerist ef neytt er of mikils af selen?

Efri mörk selens eru 300 µg á dag hjá fullorðnum en mörkin eru lægri hjá börnum. Stórir skammtar af seleni geta valdið eitrun sem leiðir til hárloss og breytinga á húð og nöglum. Auk þess geta stórir skammtar truflað joðnýtingu.

Hvernig uppfylli ég þörfina fyrir selen?

Með neyslu á fjölbreyttum mat, þar sem fiskur, kjöt, egg og mjólk er hluti af fæðinu, á að vera hægt að uppfylla selenþörfina. Nauðsynlegt er að athuga selenmagn í fæðubótarefnum vel.

Lýðheilsustöð-merki. smella á merkið til að opna heimasíðu stöðvarinnar.    Matvaelastofnun, lógó. smella á merki til að opna heimasíðu.



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica