Sími : 5 800 900
Ríbóflavín

Ríbóflavín (B2-vítamín)

23.1.2008

Ríbóflavín, sem einnig nefnist B2-vítamín, er að finna í litlu magni í mörgum fæðutegundum.ostur,_527545_web

Hvert er hlutverk ríbóflavíns?

Ríbóflavín gegnir fjölda mikilvægra hlutverka í líkamanum. Til dæmis er það:

  • hluti ákveðinna hjálparhvata sem gegna lykilhlutverki við orkubúskap fruma, oxun og rafeindaflutning
  • mikilvægt til að halda húð, augum, taugakerfi og slímhúð heilbrigðu, mikilvægt hjálparefni við framleiðslu t.d. rauðra blóðkorna

Skortur á ríbóflavíni hefur margháttuð áhrif í líkamanum og birtist m.a. sem bólga eða þroti í slímhúðum í munni, meltingarvegi, augum, húðbreytingar í munnvikum og ljósfælni.

Hvað er ráðlagt?

Ríbóflavín er vatnsleysanlegt vítamín en það þýðir að þess þarf að neyta á hverjum degi þar sem líkaminn getur ekki geymt umframmagn ríbóflavíns.

Þörfin fyrir ríbóflavín er tengd orku- og próteinneyslu en ráðlagður dagskammtur er 0,59 mg/100 kcal eða 0,14 mg/MJ fyrir börn og fullorðna.

RDS_riboflavin. Smella á mynd til að stækka.

Í hvaða matvælum er ríbóflavín helst að finna?

Mest er af ríbóflavíni í mjólk og mjólkurmat, kjöti, lifur og öðrum innmat. Töluvert er einnig í eggjum, hveitikími, hveitiklíði, heilhveiti og möndlum. Auk þess er ríbóflavín í ýmsum tegundum af vítamínbættu morgunkorni.

Hvað gerist ef neytt er of mikils magns af ríbóflavíni?

Engin eitrunareinkenni hafa greinst af völdum ríbóflavíns og stórir skammtar virðast skaðlausir.

Hvernig uppfylli ég þörfina fyrir ríbóflavín?

Þörfinni fyrir ríbóflavín ætti að vera hægt að fullnægja með því að borða fjölbreytta fæðu. Ef tekin eru fæðubótarefni, sem innihalda ríbóflavín, er rétt að hafa í huga að taka ekki inn of mikið magn.

Lýðheilsustöð-merki. smella á mynd til að opna heimasíðu stöðvarinnar   Matvaelastofnun, lógó. smella á merki til að opna heimasíðu.



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica