Sími : 5 800 900
Beta-karótín

Beta-karótín (b-karótín)

17.3.2008

gulratur,_605750_webBeta-karótín tilheyrir hópi karótíníða, þ.e. plöntulitarefna sem hafa A-vítamínvirkni og eru oft kölluð forstig retínóls.

Önnur karótíníð eru α-karótín, lútein og lýkópen en beta-karótín er þó virkast allra karótíníða. Beta-karótín breytist í slímhúð þarma og í lifrinni í retínól og nýtist líkamanum sem slíkt.

12 µg (míkrógrömm) af β-karótíni úr fæðunni samsvara einu retínóljafngildi (RJ)

Hvert er hlutverk beta-karótíns?

Beta-karótín gegnir aðallega tveimur hlutverkum í líkamanum:

  • er forstig A-vítamíns
  • er andoxunarefni sem kemur í veg fyrir myndun skaðlegra sindurefna í frumum

Rannsóknir benda til þess að rífleg neysla af beta-karótínauðugu grænmeti og ávöxtum geti minnkað líkur á sumum krabbameinum þótt staðfestingu skorti á áhrifamætti andoxunarefnanna einna og sér til varnar sjúkdómum.

Hvar er beta-karótín helst að finna?

Betakatótín fyrirfinnst í litsterku, þ.e. rauðgulu, rauðu og dökkgrænu, grænmeti og ávöxtum. Í gulrótum, papriku, apríkósum, papaja, mangó, grænkáli og spergilkáli er mikið af beta-karótíni. Þó að mjög mikið karótín sé í þessum fæðutegundum fer nýting beta-karótíns mikið eftir eldunaraðferðinni, t.d. nýtist beta-karótín betur ef gulrætur eru eldaðar eða ef safinn er pressaður úr þeim heldur en ef þær eru borðaðar hráar.

Hvað gerist ef neytt er of mikils magns af beta-karótíni?

Mikil neysla af beta-karótíni úr jurtafæðu, þ.e. grænmeti og ávöxtum, er talin skaðlaus þar sem umbreyting beta-karótíns í A-vítamíni fer eftir þörf líkamans en getur hins vegar orsakað það að húðin verði gul. Of mikil neysla á beta-karótíni á einangruðu formi, eins og úr fæðubótarefnum, getur hins vegar skaðað heilsuna. Rannsóknir benda til þess að stórir skammtar af beta-karótíni (þ.e. 20 mg á dag) auki líkur á lungnakrabbameini meðal reykingafólks.

Hvernig uppfylli ég þörfina fyrir beta-karótín?

Það er afar mikilvægt að velja daglega karótínríkt grænmeti og ávexti og hugsa vel um nýtingu þess úr fæðunni því samspil margra fleiri efnasambanda í grænmeti og ávöxtum getur skipt meiri máli en beta-karótínið í einangruðu formi. Þeir sem taka fæðubótarefni ættu að huga vel að magni beta-karótíns í þeim. Þetta á sérstaklega við um reykingafólk.


Lýðheilsustöð-merki. smella á mynd til að opna heimsíðu stöðvarinnar.

  Matvaelastofnun, lógó. smella á merki til að opna heimasíðu.

 

Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica