B6-vítamín (pýridoxín)
B6-vítamín er samheiti fyrir efnin pýridoxín, pýridoxal og pýridoxamín.Yfirlit
Hvert er hlutverk B6-vítamíns?
B6-vítamín gegnir fjölda mikilvægra hlutverka í líkamanum.
Til dæmis:
- tekur það þátt í fjölda efnahvarfa amínósýra
- er það nauðsynlegt til að líkaminn geti nýtt sér og geymt prótein og kolvetni sem fást úr fæðunni
- aðstoðar það við myndun hemóglóbíns (sem er nauðsynlegt til að flytja súrefni um líkamann)
Ófullnægjandi neysla á B6-vítamíni lýsir sér sem frávik í efnaskiptum, svo sem lítil hvatavirkni transamínasa í rauðum blóðkornum. Alvarlegur skortur eða hörgulsjúkdómur er sjaldgæfur en einkenni slíks skorts eru flogakrampar hjá börnum ásamt þyngdartapi, meltingartruflunum og óróleika en hjá fullorðnum sjást breytingar á heilalínuritum, geðtruflanir og húðbreytingar.
Hvað er ráðlagt?
B6-vítamín er vatnsleysanlegt vítamín en það þýðir að þess þarf að neyta á hverjum degi þar sem líkaminn getur ekki geymt umframmagn.
Þörfin fyrir B6-vítamín eykst með aukinni próteinneyslu og er ráðlögð neysla 0,015 mg fyrir hvert gramm af próteinum.
Rannsóknir benda til þess að aldraðir hafi aukna þörf fyrir B6-vítamín og að vítamínið gegni ef til vill verndandi hlutverki gagnvart hjarta- og æðasjúkdómum, því eru ráðleggingar fyrir 60 ára og eldri þær sömu og fyrir aðra fullorðna en fara ekki lækkandi með aldri eins og með flest önnur vítamín.
Í hvaða matvælum er B6-vítamín helst?
B6-vítamín er að finna í fjölda fæðutegunda. Heilhveiti, rúgur, hirsi og annað heilt korn eru góðir B6-vítamíngjafar. Bananar, avókadó, kartöflur og baunir eru einnig auðug að B6- vítamíni og nokkuð er af vítamíninu í kjöti og fiski. Auk þess er B6-vítamín í ýmsum tegundum af vítamínbættu morgunkorni.
Hvað gerist ef neytt er of mikils magns af B6-vítamíni?
Óæskileg áhrif mikillar B6-vítamínneyslu hafa komið fram ef neyslan fer yfir 50 mg/dag í lengri tíma (mánuð til ár). Við slíka ofneyslu koma fram minniháttar taugaeinkenni en ef skammtarnir eru enn stærri, 500 mg á dag eða meira, taugaeitrun.
Efri mörk neyslu B6-vítmamíns eru 25 mg á dag hjá fullorðnum en mörkin eru lægri hjá börnum.
Hvernig uppfylli ég þörfina fyrir B6-vítamín?
Með neyslu á fjölbreyttu fæði á að vera hægt að uppfylla þörfina fyrir B6-vítamín. Ef tekin eru inn fæðubótarefni sem innihalda B6-vítamín er mikilvægt að gæta að því að taka ekki of mikið þar sem það getur verið skaðlegt.


