Sími : 5 800 900
B12 Vítamín

B12-vítamín (kóbalamín)

23.1.2008

B12-vítamín gengur einnig undir nafninu kóbalamín og til eru ýmis afbrigði af því efni en stöðugasta formið er kjot,_662607_websýanókóbalamín. Þetta vítamín inniheldur steinefnið kóbalt.

Hvert er hlutverk B12-vítamíns?

B12-vítamín hefur fjölda mikilvægra hlutverka í líkamanum að gegna. Til dæmis:

  • tekur það þátt í efnaskiptum, þ.e. aðstoðar við að vinna orku úr fæðunni sem neytt er
  • hjálpar það til við myndun rauðra blóðkorna og heldur taugakerfinu heilbrigðu
  • er það nauðsynlegt fyrir virkni fólasíns (sem er annað B-vítamín)

Langvarandi skortur á B12-vítamíni veldur stórkornóttu blóðleysi og taugarýrnun í mænu, heila, sjóntaug og taugum í útlimum.

Frásog á B12-vítamíni er óvenjulega flókið ferli sem krefst meðal annars sérstaks próteins sem framleitt er í maga. Algeng orsök B12-vítamínskorts er skert upptaka í meltingarvegi vegna sjúkdóma í maga eða þörmum fremur en ófullnægjandi neysla. Skortur á B12-vítamíni er algengari meðal eldra fólks en þeirra sem yngri eru.

Hvað er ráðlagt?

Þó B12-vítamín sé vatnsleysanlegt getur líkaminn samt geymt einhvern forða af því.

RDS_B12 vitamin. Smella á mynd til að stækka.


Í hvaða matvælum er B12-vítamín helst að finna?

B12-vítamín er eingöngu að finna í fæðu úr dýraríkinu. Það finnst í nánast öllum kjötvörum og auk þess er töluvert magn af B12-vítamíni í laxi, þorski, síld, ufsa, lambalifur, mjólk, osti, eggjum og vítamínbættu morgunkorni.

Hvað gerist ef neytt er of mikils af B12-vítamíni?

Stórir skammtar virðast hvorki valda eitrun né öðrum skaða.

Hvernig uppfylli ég þörfina fyrir B12-vítamín?

Þar sem B12-vítamín finnst eingöngu í matvörum úr dýraríkinu er mikilvægt fyrir þá sem lifa á jurtafæði eingöngu (þ.e. án eggja og mjólkurvara) að fá efnið með því að neyta fæðubótarefnis. Móðurmjólk kvenna, sem borða eingöngu jurtafæði, getur orðið afar snauð af þessu vítamíni þannig að skortur getur komið fram hjá ungbarninu.

B12-vítamínþörfin er mjög lítil og með því að neyta einhverra vara úr dýraríkinu ætti að vera auðvelt að fá ráðlagðan dagskammt.
Sumir virðast nýta þetta vítamín illa eða ekki og geta því þurft á aukaskammti að halda, vanalega dugir þeim að taka fæðubótarefni en sumir þurfa þó að fá vítamínið með sprautum.

Lýðheilsustöð-merki. smella á merkið til að opna heimasíðu stöðvarinnar. Matvaelastofnun, lógó. smella á merki til að opna heimasíðu.



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica