Þitt er valið
Veggspjaldið Þitt er valið er í A2 stærð og það lýsir á myndrænan hátt innihaldi algengustu drykkjarvara á markaðnum og áhrifum þeirra á glerungseyðingu. Á bláa svæðinu eru þeir drykkir sem engin hætta er af, á því græna eru drykkir sem lítil hætta er af og eftir því sem neðar dregur - í áttina að rauða litnum - er meiri hætta. Einnig sýnir mælirinn t.v. hættuna á glerungseyðingu.
Einnig sýnir veggspjaldið sykurinnihald drykkjanna, sem eykst því lengra til hægri sem drykkirnir standa. Síðan eru þeir drykkir merktir með stjörnu sem innihalda koffín.
Burstum saman til 10 ára aldurs
Taktu upp þráðinn! - Fyrir barnatennur
Tannburstun fullorðinstanna
Tvisvar á dag – í tvær mínútur

Til að prenta út
Smelltu á myndina til að opna PDF-skjalið og vista eða pretna
Skoða veggspjaldið A4
Taktu upp þráðinn! - Fyrir fullorðinstennur
Drekkum vatn, skilti - 20 x 20 cm



