Tannvernda barna
Einblöðungur með ýmsum upplýsingum um tannvernd s.s. tannhirðu, tanntöku, tannslys, snuðnotkun og mataræði í tengslum við tannheilsu, o.fl.
Erlend tungumál
Texti einblöðungs, og útdráttur, hefur verið þýddur á 8 tungumál.
Smellið á tengilinn til að skoða og prenta út textana.
Íslenska (A4, .pdf-skjal, opnast í nýjum glugga)
Albanska, enska, pólska, rússneska, serbneska, spænska, taílenska, víetnamska
Litabók um tanndísina og skemmdaskrímslin
Við verðum að passa tennurnar okkar vel. Þær hafa mörgum mikilvægum hlutverkum að gegna. Með þeim tyggjum við matinn okkar og þær hjálpa okkur að mynda hljóð þegar við tölum. Auk þess gera þær okkur falleg þegar við brosum.
Þessi litabók fjallar um litlu stúlkuna hana Lovísu, tanndísina sem passar tennurnar okkar og skemmdaskrímslin. Skemmdaskrímslin eru nú ljótu karlarnir. Ef við burstum ekki tennurnar okkar kvölds og morgna þá höggva þeir og bora í þær holur. Tanndísin flýgur um á nóttunni og skoðar litlu barnatennurnar sem hafa losnað.
Hún gerir líka allt sem hún getur til að fá börnin til að bursta tennurnar kvölds og morgna svo að skemmdaskrímslin komist ekki í þær. En það er ekki alltaf svo auðvelt!
Hér má sækja bókina á pdf-formi (1Mb),
eða panta hana tilbúna prentaða og heftaða frá Lýðheilsustöð.
Bókin um barnatennurnar
Bókin um barnatennurnar er ætluð til að fræða börn og foreldra um munnheilsu barna. Í bókinni er fræðsla um tannvernd allt frá því að fyrsta barnatönnin verður sýnileg þar til fullorðinstennurnar byrja að kom upp. Bókinni er ætlað að vekja athygli foreldra yngri barna á því hversu mikilvægur þáttur tannvernd er í uppvexti barnsins. Bókina fá foreldrar að þegar þeir koma með börn sín í ungbarnaeftirlit (6 mánaða skoðun). Hafi bókin týnst eða foreldri af einhverjum ástæðum ekki fengið hana, bendum við þeim að hafa samband við sína heilsugæslustöð og biðja um eintak.
Athugið að heilsugæslustöðvar, leikskólar, grunnskólar og bókasöfn geta eingöngu pantað þessa bók.
Karíus og Baktus
Bókin um Karíus og Baktus. Hið sígilda ævintýri eftir Thorbjörn Egner. 
Athugið að heilsugæslustöðvar, leikskólar, grunnskólar og bókasöfn geta eingöngu pantað þessa bók.
Tannvernd þroskaheftra
Bæklingur sem ætlaður er foreldrum, aðstandendum og þeim sem starfa með þroskaheftum. Í bæklingnum er fróðleikur um það sem helst veldur tannskemmdum, tannholdsbó
lgu og tannsteini. Einnig eru skýringamyndir sem sýna t.d. tillögur að vinnustöðu þegar aðstoða þarf annan einstakling við tannburstun.
Hollt og gott fyrir börn
Hollt og gott fyrir börn
Hefti með uppskriftum og hugmyndum að ýmsu góðgæti þar sem sykur er hafður í lágmarki.
