Sími : 5 800 900

Kynlíf

Unglingabæklingur kynlíf, forsíða

: Kynlíf

Til að svara þessum og mörgum fleiri spurningum var ákveðið árið 2006 að gefa út fræðslubækling um ungt fólk og kynlíf þar sem höfundarnir lögðu sig fram um að finna svör og fræðsluefni um allt það helsta sem snertir ungt fólk og kynlíf.

Einnig gáfu höfundarnir út bækling fyrir foreldra og snýst hann um það hvernig foreldrar geti rætt við börn sín um kynlíf.

Vissir þú að:

- Líkami þinn er einstakur
- Typpi eru í öllum stærðum og gerðum; stutt og löng, þykk og skökk, lítil og stór
- Brjóst eru líka misstór, lítil og stór, næm og ekki næm
- Snípur og skapabarmar geta verið misstórir og ólíkir í útliti
- Blæðingar geta byrjað fyrir fermingaraldur eða á framhaldsskólaaldri
- Kynlíf er miklu meira en samfarir
- Kynlíf er betra þegar maður er tilbúin(n) til þess og verður betra og betra...

Staðreyndir á Íslandi:

- Það smitast um 9 einstaklingar, 19 ára og yngri, af klamydíu á dag.
- Sumir kynsjúkdómar fylgja þér alla ævi.
- Það smitast tæplega einn í mánuði af HIV/alnæmi og það er engin lækning í augsýn. Flestir sem greinast með smit eru 25-29 ára.
- Það fara tæplega 4 stúlkur á aldrinum 19 ára og yngri í fóstureyðingu í hverri viku, og næstum því jafn margar á sama aldri eignast börn í hverri viku.

Kynlíf - unglingar

Unglingabæklingur-munnurFræðslubæklingur fyrir unglinga sem nefnist Kynlíf – unglingar. Í honum er meðal annars skrifað um rétt unglinga í kynlífi, bjartar og dökkar hliðar kynlífs og hvert hægt sé að leita til að fá upplýsingar um kynlíf.

Að útgáfunni standa Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir (FKB), Lýðheilsustöð, Forvarnarnefnd Reykjavíkurborgar og Landlæknisembættið.

Skoða bækling (PDF-skjal, opnast í nýjum glugga. 3. útg., endursk.2009)

Kynferðisofbeldi

Á síðunni Ungt fólk til ábyrgðar er fjallað um heilbrigð sambönd fólks en líka það sem getur farið úrskeiðis, t.d. kynferðisofbeldi.

Tenglar

Ýmsir aðilar og stofnanir veita ráð og aðstoð í sambandi við kynlíf. Hér er sagt frá þeim helstu og tenging í vefsíður þeirra.



Panta 'Kynlíf'
 
Foreldrabæklingur kynlíf, forsíða

: Samskipti foreldra og barna um kynlíf

Fræðslubæklingur sem ætlaður er foreldrum og nefnist Samskipti foreldra og barna um kynlíf. Í honum er meðal annars fjallað um mikilvægi þess að börn og unglingar fræðist um kynlíf, þroska barna á hinum ýmsu aldursskeiðum og leiðir fyrir foreldra til að ræða um kynlíf við börn og unglinga.

Að útgáfunni standa Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir (FKB), Lýðheilsustöð, Forvarnarnefnd Reykjavíkurborgar og Landlæknisembættið.

.
Skoða bækling (3ja útg. endurskoðuð, 2009)
Texti bæklingsins til útprentunar

.

Panta 'Samskipti foreldra og barna um kynlíf'
 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica