Geðheilsa barnsins þíns - Það sem sérhver fjölskylda ætti að vita
Bæklingur fyrir aðstandendur barna
Ef þú lest þetta…
... ert þú líklega foreldri eða manneskja sem er annt um líf og heilsu barns sem þú þekkir. Stundum koma upp kringumstæður þar sem erfitt reynist að koma auga á bestu leiðina til að láta í ljós væntumþykju og hvernig þú getur leiðbeint barninu þínu.
Bæklingur fyrir aðstandendur barna'
Geðheilsan þín skiptir máli
Lífið getur verið erfitt… sérstaklega þegar þú ert unglingur!
Á unglingsárunum tekst þú á við skemmtilega hluti og ævintýri en líka alls kyns áhyggjur og vanda; svo sem að falla inn í hópinn, vera vinsæll, ganga vel í skóla, semja við vini og fjölskylduna, komast yfir sambandsslit og taka mikilvægar ákvarðanir um lífið. Flesta þessa þætti er ekki hægt að forðast og það er eðlilegt að hafa af þeim áhyggjur. Í þessum bæklingi er geðheilsa til umfjöllunar og hvernig þekkja má merki þess að um geðheilsuvanda sé að ræða, hvað er til ráða, hverjir geta hjálpað og hvert hægt er að leita.
Deila
Velgengni og vellíðan - um geðorðin 10
Bókin Velgengni og vellíðan - um geðorðin 10 kom út í desember 2007 er fallega myndskreytt bók með góðum ráðum um hvernig rækta megi geðheilsuna. Efnið byggist á fræðilegum bakgrunni geðorðanna 10 og tengslin við helstu þætti geðheilsunnar.
Velgengni og vellíðan - um geðorðin 10 kostar 950 kr. hjá Lýðheilsustöð.
Bókin er einnig til sölu í öllum helstu bókaverslunum landsins.
Skoða sýnishorn af Velgengni og vellíðan - um geðorðin 10.
(Skjalið opnast í nýjum glugga.)
Lesa inngang Velgengni og vellíðan - um geðorðin 10.
(Skjalið opnast í nýjum glugga.)
Veggspjöld með geðorðunum fást endurgjaldslaust. Upplýsingar og pöntunarform má finnahér.
Geðrækt - þríbrotinn bæklingur á íslensku
Í október 2004 kom út nýr bæklingur um geðrækt.
Mental Health Promotion, tri-fold brochure
Mental health promotion brochure. Published in 2004.
Skoða bækling í pdf formi / Open brochure in PDF format.
Vinir Zippýs - kynningarbæklingur á námsefni

Kynning á námsefninu sem kennt er í Vinir Zippýs, hægt að skoða hér á síðunni og prenta út.
Vinir Zippýs - bæklingur
|
Lýðheilsustöð hefur gefið kynningarbæklinginn út og látið prenta á íslensku, en að auki má nálgast PDF-útgáfur af honum á ýmsum erlendum tungum með því að smella hér. |
Skoða bæklinginn (PDF-útgáfa)

Vinir Zippýs er alþjóðlegt geðræktarverkefni fyrir yngstu bekki grunnskólans.