Tóbak

Heldurðu að það sé allt í lagi að nota munntóbak?

Taktu þátt í munntóbaksleikum og lærðu meira um munntóbak! Sumir halda að notkun munntóbaks hafi ekki skaðleg áhrif á heilsuna. Hér eru nokkur þeirra atriða sem haldið er fram og svo staðreyndir málsins - en fyrst þetta: Allur innflutningur, sala og dreifing á fínkorna munntóbaki er ólöglegur. Innflutningur til eigin nota er ekki undanskilinn þessari reglu.

Þeir sem halda að í lagi sé að nota munntóbak hafa flestir ef ekki allir heyrt sögusagnir sem eiga að sannfæra þá um ágæti munntóbaks.

Misskilningur um munntóbakMunntóbak, FSmellið á myndina til að opna munntóbaksleikinn og vefsíðuna.

Sumir halda að notkun munntóbaks hafi ekki skaðleg áhrif á heilsuna. Þetta er alrangt eins og allir geta séð ef þeir lesa efnið á þessari síðu eða smella á myndina hér til hliðar en þá opnast sérstök vefsíða með leik og fræðslu um munntóbak.

Munntóbak er skaðlaust!

Smellið á myndina til að skoða bæklinginn Óþægilegar staðreyndirHér eru nokkur þeirra atriða sem haldið er fram og svo staðreyndir málsins - en fyrst þetta:

Allur innflutningur, sala og dreifing á fínkorna munntóbaki er ólöglegur. Innflutningur til eigin nota er ekki undanskilinn þessari reglu.

Munntóbak er langt frá því að vera skaðlaust. Í því eru a.m.k. 28 þekktir krabbameinsvaldar og sumir í mun meira magni í munntóbaki en reyktóbaki. Sá sem notar 10 gr. af munntóbaki á dag fær t.d. allt að þrefalt meira af ákveðnum krabbameinsvaldandi efnum en sá sem reykir 1 pakka af sígarettum á dag. Munntóbaksnotkun eykur hættu á krabbameini í munni fimmtíufalt og notendur eru í aukinni hættu að fá krabbamein meltingavegi, að auki er ekki hægt að útiloka önnur krabbamein, svo sem í þvagblöðru.

Hjartavöðvinn er mikilvægasti vöðvi líkamans og þarf á reglulegu flæði blóðs að halda til að geta starfað eðlilega. Við notkun munntóbaks dragast æðarnar saman og eru æðarnar í kringum hjartað þar engin undantekning. Þrenging æða veldur því að blóðþrýstingur eykst og hár blóðþrýstingur er einn af helstu áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma – líka hjá ungu fólki.

(Lesa líka greinina Hvað er snus?)

Munntóbak er ekki eins ávanabindandi og sígarettur!

Þrjár ástæður má nefna sem sýna að þessi misskilningur fær ekki staðist:

  1. Níkótín er það sem veldur fíkn í tóbak og það er í allt að ferfalt meira magni í munntóbaki en sígarettum.
  2. Saltkristöllum er oft bætt í munntóbakið sem er ætlað að brenna göt á slímhúðina og tryggja þannig að níkótínið fari hraðar og betur inn í æðarnar í munni og nefi.
  3. Yfirborð fínkorna munntóbaks (snus) er mjög mikið og berst því nikótínið hratt út í blóðið.
    Allt ofantalið veldur því að fíknin í munntóbak er oft meiri en í sígarettur og mun erfiðara er að hætta.

Munntóbak hefur jákvæð áhrif á árangur í íþróttum og hefur ekki áhrif á útlitið!Smellið til að sjá stærri mynd

Þetta er útbreiddur misskilningur, jákvæð áhrif eru engin. Við munntóbaksnotkun þrengjast æðar og blóðflæði minnkar því til vöðvana. Vöðvarnir þurfa blóð til að vaxa og styrkjast en minnkað blóðflæði til þeirra hefur þau áhrif að árangur þjálfunar verður mun lakari, meiri líkur eru á meiðslum og erfiðara er að ná sér eftir þau. Fólki getur fundist munntóbak gera það hressara en ástæðan er tímabundin örvandi áhrif níkótíns. Síðan veldur munntóbak því að tennur gulna og skemmast, tannhold bólgnar og gómar rýrna. Við þetta verður tannlos og mikil andfýla. Þeir sem nota munntóbak sjá breytingu á slímhúð í munni mjög fljótt en lýti af völdum krabbameins í munni eru einnig oftast skelfileg.

Viljirðu hætta tóbaksnotkun þá geturðu m.a. fengið einstaklingsmiðaða aðstoð í Reyklausa símann 800 6030 alla virka daga milli kl. 17 og 19.

Jakobína H. Árnadóttir, MSc í Heilsusálfræði
Verkefnisstjóri Lýðheilsustöð


Reykingar

Tóbak og reykingar

Það er miklu auðveldara að byrja aldrei að reykja en að hætta. Ef þú byrjar ekki að reykja fyrir tvítugsaldurinn þá eru mjög miklar líkur, eða 73%, á því að þú reykir aldrei! Þetta kemur fram í rannsókninni Heilsa og líðan íslendinga 2007 og miðast við reynslu 18-79 ára núlifandi íslendinga.

Ekki nóg með að þetta sé rándýrt „áhugamál“ heldur eru í tóbaki mjög mörg eiturefni og önnur efni sem gera reykingamenn að fíklum á skömmum tíma. Reykingar hafa að auki ömurleg áhrif á heilsuna - sem mjög oft leiðir til ótímabærs dauða og nánast undantekningarlaust til mun lélegri heilsu og verra ónæmiskerfis en hjá þeim sem ekki reykja / nota munntóbak.
Hér finnurðu upplýsingar um allt þetta og með reiknivélinni geturðu reiknað út hvað það kostar mikið að reykja. 



Laugavgi 116 - 105 Reykjavík - S:5 800 900

Þetta vefsvæði byggir á Eplica