Tóbak og reykingar
Það er miklu auðveldara að byrja aldrei að reykja en að hætta. Ef þú byrjar ekki að reykja fyrir tvítugsaldurinn þá eru mjög miklar líkur, eða 73%, á því að þú reykir aldrei! Þetta kemur fram í rannsókninni Heilsa og líðan íslendinga 2007 og miðast við reynslu 18-79 ára núlifandi íslendinga.
Ekki nóg með að þetta sé rándýrt „áhugamál“ heldur eru í tóbaki mjög mörg eiturefni og önnur efni sem gera reykingamenn að fíklum á skömmum tíma. Reykingar hafa að auki ömurleg áhrif á heilsuna - sem mjög oft leiðir til ótímabærs dauða og nánast undantekningarlaust til mun lélegri heilsu og verra ónæmiskerfis en hjá þeim sem ekki reykja / nota munntóbak.
Hér finnurðu upplýsingar um allt þetta og með reiknivélinni geturðu reiknað út hvað það kostar mikið að reykja.