Tóbak

Áhrif reykinga á líkamann

Reykingar hafa áhrif á líkamann strax frá fyrstu sígarettu. Hér eru upplýsingar um hver áhrifin geta verið.

Áhrif reykinga á líkamann, smellið á myndina til að stækka. Margir krakkar - og fullorðnir - halda að áhrif reykinga á líkamann komi ekki fram fyrr en á miðjum aldri. Reyndin er sú að áhrifin koma STRAX fram um leið og reykt er. Reykingar hafa slæm áhrif á daglega líðan, útlit og starfsemi líkamans og leggja grunn að ævilangri skemmdarstarfsemi á eigin líkama, sem þar að auki kostar mikla peninga. (Sjá Sagt er um reykingar, satt er.)

Hér á eftir eru upplýsingar um ýmis áhrif reykinga og unnar eru í tengslum við veggspjaldið Áhrif reykinga á líkamann.

Skoða veggspjaldið Áhrif reykinga á líkamann                   Panta veggspjaldið

Heilinn

 Holdum_heilanum_-_barmmerki,_blattReykingar hjálpa manni ekki að slappa af. Þvert á móti er stressandi að reykja. Nikótín breytir starfsemi heilans þannig að líkaminn verður háður efninu. Þegar þeir sem reykja segjast slaka á við að reykja eru þeir í raun bara að svala þessari fíkn.

Unglingar verða háðir nikótíni fljótar en þeir sem eldri eru: Innan örfárra sekúndna frá því að tóbaksreykurinn er dreginn að sér er nikótínið komið til heilans. Líkaminn bregst við með því að vilja meir og meir = fólk er orðið fast í nikótínnetinu! Fólk verður háð sígarettum út af því að efni í þeim breyta móttökustöðvum í heilanum. Sumar breytingarnar geta verið varanlegar.

Það hefur sýnt sig að líklegra er að þeir unglingar reyki daglega sem finnst þeir stressaðir, sýna depurð og telja sig fremur stjórnast af umhverfinu en því sem þeir geta sjálfir haft áhrif á.

Augun

augu,_unglingur_(18_ara)Efni í sígarettum skemma viðkvæmt svæði í augunum sem hefur slæm áhrif á sjónina. Sumir verða jafnvel blindir af reykingum. Ótrúlegt en satt.

Húð

hrukkurung frekknótt stúlka. smellið á mynd til að stækka. (mynd fengin að láni hjá MedicinNet.com)Reykurinn í einni sígarettu minnkar súrefnisflæðið til húðarinnar í næstum klukkutíma. Önnur efni í sígarettum skemma líka húðina á ýmsan hátt og tóbaksreykur getur þurrkað húðina. Húð reykingafólks er oft gráleitari og talið er að hún eldist mörgum árum fyrr en húð þeirra sem ekki reykja. Hrukkur myndast t.d. í kringum munninn, hrukkur sem myndast við að sjúga reyknum að sér og blása honum frá sér, og í kringum augnkrókana, því fólk kiprar oft augun svo reykurinn fari síður í þau.

Hár

hárbursti, hárlos. smellið á mynd til að stækkaReykingar hafa sýnileg áhrif á hárið. Tóbaksnotkun hindrar eðlilega blóðrás líkamans og þar með til hársins. Þetta hefur m.a. þau áhrif að hár fólks sem notar tóbak skemmist, þynnist og gránar fyrr en þeirra sem ekki nota tóbak.

Munnur

Reykingatennur. smellið á myndina til að stækka. Það er ekki góð lykt út úr þeim sem nota tóbak og flestir vita að tennur dökkna og gulna út af reykingum (sjá mynd). En kannski vita ekki allir að langtímareykingar leiða líka af sér tannlos og sjúkdóma í tannholi. Munntóbakið skemmir m.a. slímhimnuna í munninum og tannrótina, ef hún er orðin ber 

(Skoða myndband um tannlos).

(Skoða ,,munntóbaksleikinn" )

Háls og vélinda

Reykingar auka líka líkurnar á því að fá krabbamein í munni, hálsi og vélinda. 

 

Lungun

Eiturefni safnast fyrir í lungunum við reykingar. Sérstakar frumur í lungunum reyna að vinna á eiturefnunum en drepast í tóbaksreyknum. Reykingahósti stafar af þessum skemmdum.

Tjaran í sígarettum skemmir líka frumur í loftgöngunum, svo bifhárin þar geta ekki sópað burt skaðlegum efnum. Á löngum tíma geta þessar skemmdir hrint af stað óstjórnlegum frumuvexti sem leiðir af sér krabbamein í lungunum eða barkakýli. Langflest tilfelli ungnakrabbameina stafa af reykingum.

Þol þeirra sem reykja minnkar vegna þess að lungun starfa ekki almennilega og líkaminn fær því minna súrefni.

Hjarta og æðar

 Nikótínið í sígarettum fær hjartað til að slá hraðar og blóðþrýstingurinn snarhækkar. Það er nikótínið sem hefur þessi slæmu áhrif á taugakerfið. Í tóbaksreyk er líka koleinoxíð sem er sama efni og kemur úr púströrum bíla. Það minnkar getu blóðsins til að flytja súrefni og eykur álagið á hjartað.

Til lengri tíma litið þá stórauka reykingar hættuna á að fá hjartaáfall.

 

Meltingarkerfi

Áhrif reykinga á meltingarfærin eru merkilega mikil. Reykingar geta valdið meltingartruflunum, magasári og brjóstsviða. Því lengur sem maður reykir, því meiri líkur eru á að fá alvarlega sjúkdóma, s.s. krabbamein í maga.

Vöðvar

Hlaupandi fólk. smellið á mynd til að stækka.Efni í sígarettum valda því að æðarnar dragast saman og þrengjast. Minna súrefni flyst þá um líkamann sem hefur þau áhrif að vöðvarnir verða minni og slappari. Það hefur að sjálfsögðu áhrif á alla íþróttaiðkun.

  Lifandi efni um áhrifin á líkamann

Áhrif reykinga á líkamann, mynd af forsíðu. Smellið á mynd til að opna vefsíðuna.Tengillinn hér er í lifandi fræðsluefni á ensku um áhrif tóbaks á líkamnn þar sem hægt er að sjá á myndrænan hátt hvað getur gerst. Sumar myndirnar geta haft mjög sterk áhrif á áhorfandann. (Tengillinn er í efni á vefsíðu Centers for Disease Control and Prevention.)  
 
 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 




Reykingar

Tóbak og reykingar

Það er miklu auðveldara að byrja aldrei að reykja en að hætta. Ef þú byrjar ekki að reykja fyrir tvítugsaldurinn þá eru mjög miklar líkur, eða 73%, á því að þú reykir aldrei! Þetta kemur fram í rannsókninni Heilsa og líðan íslendinga 2007 og miðast við reynslu 18-79 ára núlifandi íslendinga.

Ekki nóg með að þetta sé rándýrt „áhugamál“ heldur eru í tóbaki mjög mörg eiturefni og önnur efni sem gera reykingamenn að fíklum á skömmum tíma. Reykingar hafa að auki ömurleg áhrif á heilsuna - sem mjög oft leiðir til ótímabærs dauða og nánast undantekningarlaust til mun lélegri heilsu og verra ónæmiskerfis en hjá þeim sem ekki reykja / nota munntóbak.
Hér finnurðu upplýsingar um allt þetta og með reiknivélinni geturðu reiknað út hvað það kostar mikið að reykja. 



Laugavgi 116 - 105 Reykjavík - S:5 800 900

Þetta vefsvæði byggir á Eplica