Tóbak

Reyklaus.is - gagnvirkur vefur

reyklaus.is - smellið á myndina til að opna gagnvirku heimasíðunaMargir hafa oft reynt að hætta að reykja. Með aðstoð eru mun meiri líkur á að það takist og mörgum finnst gott að vera virkir á bloggsíðu reyklaus.is.

Gagnvirka vefsíðan reyklaus.is hefur hjálpað mjög mörgum sem eru að berjast við að losna undan tóbaksfíkninni, bæði með alls konar hjálpartækjum á síðunni og með því að bjóða persónulega aðstoð símleiðis. Þá aðstoða sérþjálfaðir hjúkrunarfræðingar þig við að hætta. Svo er skemmtilegt að taka þátt í baráttunni með öðrum sem eru lika að reyna að hætta með því að blogga! Skoðaðu endilega síðuna og sjáðu hvort þetta er eitthvað fyrir þig - það sakar alla vega ekki að prófa!


Reykingar

Tóbak og reykingar

Það er miklu auðveldara að byrja aldrei að reykja en að hætta. Ef þú byrjar ekki að reykja fyrir tvítugsaldurinn þá eru mjög miklar líkur, eða 73%, á því að þú reykir aldrei! Þetta kemur fram í rannsókninni Heilsa og líðan íslendinga 2007 og miðast við reynslu 18-79 ára núlifandi íslendinga.

Ekki nóg með að þetta sé rándýrt „áhugamál“ heldur eru í tóbaki mjög mörg eiturefni og önnur efni sem gera reykingamenn að fíklum á skömmum tíma. Reykingar hafa að auki ömurleg áhrif á heilsuna - sem mjög oft leiðir til ótímabærs dauða og nánast undantekningarlaust til mun lélegri heilsu og verra ónæmiskerfis en hjá þeim sem ekki reykja / nota munntóbak.
Hér finnurðu upplýsingar um allt þetta og með reiknivélinni geturðu reiknað út hvað það kostar mikið að reykja. 



Laugavgi 116 - 105 Reykjavík - S:5 800 900

Þetta vefsvæði byggir á Eplica