Reyklaus bekkur - árvisst verkefni í 7. og 8. bekk
Reyklaus bekkur er samkeppni sem fram fer árlega í 7. og 8. bekk í skólum landsins.
Sérstök vefsíða er fyrir verkefnið þar sem fram koma allar helstu upplýsingar um þátttöku, fréttir af starfinu, vinningshöfum, gjöfum og fleiru.
Verkefnið hefur gengið mjög vel á Íslandi og hefur áreiðanlega stuðlað að því að margir krakkar byrja ekki að reykja.

