Önnur vímefni

Fráhvörf

Fráhvörf er ástand sem kemur fram þegar þegar neyslu vímuefna er hætt og einkennist af margvíslegum óþægindum sem nefnast fráhvarfseinkenni.

Einkenni sem geta komið fram eftir (langvarandi) notkun vímuefna eða lyfja eru m.a. kvíði, einkenni þunglyndis, svitaköst, svefntruflanir, aukinn hjartsláttur, krampar, kviðverkir og skjálfti.

Fráhvarfseinkennum má ekki rugla saman við eftirköst eftir mikla drykkju eitt kvöld. Slík eftirköst eru vegna eituráhrifa áfengis og einkennast af höfuðverk og ógleði og ertingu frá meltingarvegi ef drukkið var óblandað sterkt áfengi. Fráhvörf er allt annars eðlis og verða vegna þess að heilinn hefur aðlagað sig stöðugu áfengismagni. Sé drykkju hætt er heilastarfsemin sett úr jafnvægi í 1 til 3 daga. Fráhvarfseinkenni frá áfengi eru venjulega skjálfti, óróleiki og ofstarfsemi á adrenerga hluta sjálfráða taugakerfisins sem meðal annars kemur fram í hröðum hjartslætti og háum blóðþrýstingi. Alvarlegri fráhvarfseinkenni eru krampar, ofskynjanir eða titurvilla (Delerium tremens).


Heimildir:

Rafn M. Jónsson, Lýðheilsustöð,
vefur SÁÁ   http://www.saa.is/islenski-vefurinn/fraedsluefni/afengi/   (tekið 6. jan.2009)


Vímuefni

Önnur vímuefni

Hér er fjallað um önnur vímuefni en tóbak og áfengi. Einu nafni er oft talað um ólögleg vímuefni. Oftar en ekki er um að ræða afar hættuleg efni - og alveg sama hvað hver segir þá er sá sem prófar einhver þessara efna að stofna lífi sínu í hættu.
Hér má fá upplýsingar um þau efni sem eru í umferð á Íslandi og á síðunni eru tenglar við stofnanir víða um heim þar sem má fá enn meiri upplýsingar.



Laugavgi 116 - 105 Reykjavík - S:5 800 900

Þetta vefsvæði byggir á Eplica