Mataræði
5 á dag
Borðum grænmeti og ávexti heilsunnar vegna
Lýðheilsustöð hvetur fólk til að borða fimm skammta eða 500 grömm af grænmeti, ávöxtum og safa á dag fyrir fullorðna, þar af a.m.k. 200g af grænmeti og 200g af ávöxtum, auk kartaflna.

| Einn skammtur getur verið einn meðalstór ávöxtur, 75-100g af grænmeti (þ.e. 1 dl af soðnu grænmeti eða 2 dl af salati), eða glas af hreinum ávaxtasafa. |
Það er auðveldara en þú heldur að ná 5 skömmtum á dag. Þú getur til dæmis fengið þér einn ávöxt eða ávaxtasafa að morgni og grænmetissalat með hádegismatnum, annan ávöxt síðdegis, tvær tegundir af grænmeti með kvöldmatnum. Skammtarnir eru orðnir fimm - og þar sem engin ástæða er til að hætta að svo komnu máli geturðu fengið þér ferska ávexti í eftirrétt.
Mundu að fjölbreytnin skiptir máli! |
Sjá einnig ráðleggingar um mataræði
Meira um næringu og hollt mataræði er að finna á þessari heimasíðu

