Áfengi

Hitaeiningar í áfengi

Mörgum þykir tilheyra að fá sér í glas um helgar eða í partýum, og telja jafnvel að skemmtunin sé í réttu hlutfalli við það magn áfengis sem neytt er. En eitt er víst; hinar velþekktu hitaeiningar eru miklu frekar í réttu hlutfalli við magn áfengis. Skoðaðu listann og veltu fyrir þér hvað þú setur ofan í þig.

Veistu hvað margar hitaeiningar eru í áfengum drykkjum?

 

drykkur magn hitaein. (miðgildi)
áfengisgos (breezer, o.þ.h.) 275 ml 148 - 182 
lítill bjór (5%) 330 ml 149
stór bjór (5%) 500 ml 225
lítill bjór (4,5%) 330 ml 129
stór bjór (4,5%) 500 ml 195
vodki í gosi, einfaldur 250 ml 155
vodki í gosi, tvöfaldur 330 ml 236
vodki í diet-gosi, einfaldur 250 ml 58
vodki í orkudrykk, einf. 200 ml 135 - 148
romm í gos, einfaldur 250 ml 162
romm í ávaxtasafa, einfaldur 250 ml 162 - 185
viský í sódavatn, einfaldur 56
rauðvínsglas 175 ml 138
hvítvínsglas 175 ml 117 - 138
rósavínsglas 175 ml 124
kampavínsglas 175 ml 133
Baileys 37 ml 129

einfaldur = 25 ml. af áfengi
tvöfaldur = 50 ml. af áfengi

Til að brenna 150 hitaeiningum þarf meðalmanneskja að ganga rösklega í 30-40 mínútur.


Heimildir:

ÍSGEM (Íslenski gagnagrunnurinn um efnainnihald matvæla) http://www.matis.is/media/utgafa//Naring_drykkir.pdf
Nutracheck http://www.nutracheck.co.uk/calories/calories_in_alcohol/Alcohol.html  (5. jan. 2009)


Áfengi

Áfengi og áhrif þess

Hvað er áfengi og hver eru áhrif þess á líkamann - og þá sérstaklega á ungan líkama?
Hér verður hægt að finna svör við flestum spurningum umi áfengi og áhrif þess. Í hnotskurn má þó segja að heilsunnar vegna er best að forðast algjörlega neyslu áfengis - og því lengur sem ungt fólk seinkar því að byrja að drekka því betra.



Laugavgi 116 - 105 Reykjavík - S:5 800 900

Þetta vefsvæði byggir á Eplica