Sími : 5 800 900

Umsókn

Reyklaus 2009

lhsradgjofe

UMSÓKNAREYÐUBLAÐ

Evrópsku reykleysisverðlaunin ,,Reyklaus 2009”

Reyksíminn og Lýðheilsustöð leita að fólki, sem ekki notar tóbak og býr yfir reynslusögum við að hætta að reykja, sem gætu veitt öðrum innblástur til að hætta að reykja.


Viljir þú taka þátt og eiga möguleika á að vinna þarftu að hafa hætt að reykja eftir 1. janúar 2008 eða hætta ekki síðar en 30. júni 2009 og halda áfram að vera reyklaus a.m.k. til febrúarloka 2010.

Verðlaun

  • Vinningshafinn á Íslandi hlýtur í verðlaun ferð á Evrópsku verðlaunaafhendinguna ,,Quitter of the year” á Spáni í febrúar 2009 og 50.000 kr. í gjaldeyri.

  • Verðlaunahafinn verður einn af 19 vinningshöfum heildarkeppninnar í Evrópu og á möguleika á að verða valinn Vinningshafi Evrópu („European Quitter of the Year“) en sá hlýtur í verðlaun ferðaávísun upp á 5.000 evrur. Önnur verðlaun eru ferðaávísun upp á 2000 evrur.

Forsendur

Til að geta tekið þátt verður þú að að hafa hætt að reykja eftir 1. janúar 2008 eða hætta ekki síðar en 30. júni 2009 og halda áfram að vera reyklaus a.m.k. til febrúarloka 2010.
Til að fá stuðning við að hætta, þér að kostnaðarlausu, geturðu hringt í reyksímann 8006030 eða sent tölvupóst á netfangið reyklaus@reyklaus.is eins oft og þú vilt. Þú getur líka fengið stuðning með því að skrá þig á gagnvirku vefsíðuna www.reyklaus.is.


Persónuupplýsingar

Til að geta metið umsóknina þurfum við að fá að vita eins mikið um þig og hægt er.
svaraðu því öllum spurningum eftir bestu getu.

Mikilvægar upplýsingar

Þeir sem komast í úrslit munu þurfa að gangast undir próf um að þeir séu reyklausir. Að auki þurfa þeir að gefa reyksímanum leyfi til að hafa samband við lækni sinn til að fá staðfestingu á reykbindindi.
Með því að sækja um samþykkirðu þessar reglur.

Eftir minni bestu vitund er allt rétt sem hér kemur fram og ég samþykki að fylgja reglum keppninnar, sjá hér að neðan.

Reglur

Þátttakendur þurfa að vera reyklausir frá 30. júní 2009 til febrúarloka 2010. Umsóknarfrestur er til 31. desember 2009. Umsækjendur verða að vera eldri en 16 ára. Sérvalin dómnefnd velur vinningshafa og er ákvörðun þeirra endanleg. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að koma fram í fjölmiðlum eftir þörfum. Þeir sem komast í úrslit munu þurfa að gangast undir próf um að þeir séu reyklausir. Starfsmenn reyksímans, Lýðheilsustöðvar og Pfizer geta ekki tekið þátt.
REGLURNAR TELJAST SAMÞYKKTAR UM LEIÐ OG UMSÓKN HEFUR VERIÐ SEND.

Tilkynnt verður um vinningshafa í janúar 2010. Þakka þér fyrir áhugann á Evrópsku reykleysisverðlaununum 2009.

Evrópsku reykleysisverðlaunin eru styrkt af Pfizer

Hvar fréttir þú af keppninni reyklaus 2009?

(Til að fyrirbyggja ruslpóst)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica