Sími : 5 800 900
Tóbak- og tóbaksvarnir

Reykingar í 10. bekk grunnskóla

Breytingar á reykingum íslenskum grunnskólum 1974-2004

29.12.2005

Reykingar í 10. bekk grunnskóla í sögulegu lámarki

Frá árinu 1974 hefur verið fylgst nokkuð reglulega með reykingum nemenda í 10. bekk grunnskóla. Fjölmargir hafa sinnt rannsóknum á þessu sviði í gegnum árin. Frá 1974 hefur borgarlæknir/héraðslæknir í Reykjavík staðið fyrir könnunum meðal nemenda í Reykjavík (Jón Sigurðsson 1975). Starfsmenn Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála lögðu fyrir kannanir á landinu öllu árin 1992, 1995, 1997 og 1998. Frá árinu 1999 hafa fjölmargir starfsmenn hjá rannsóknafyrirtækinu Rannsóknir & greining lagt fyrir kannanir árlega í 10. bekk grunnskóla. Hafa það ýmist verið sjálfstæðar rannsóknir á tóbaks-, áfengis- og vímefnaneyslu unglinga eða sem hluta af fjölþjóðlegri rannsókn á áfengis- og vímuefnaneyslu unglinga (ESPAD) (Stefán Hrafn Jónsson o.fl., 2003; Þóroddur Bjarnason og Stefán Hrafn Jónsson, 2004). Íslenski hluti ESPAD rannsóknarinnar hefur verið fjármagnaður að stórum hluta af Áfengis- og vímvarnarráði og síðar Lýðheilsustöð.

Hlutfall nemenda sem reykir daglegaReykingar10.bekk

Skýringar við mynd:

Tölur fyrir Reykjavík frá 1974 má finna í Jón Sigurðsson  (1975) og Þórólfur Þórlindsson o.fl. (1998).

Tölur fyrir landsmeðaltal 1995-2003 má finna  í Stefán Hrafn Jónsson o.fl. (2003).

Nánari greining fyrir árið 2003 má finna í Þóroddur Bjarnason og Stefán Hrafn Jónsson (2004).

Tölur fyrir 1997 til 2005 landið í heild og höfuðborgarsvæðið má finna í Rannsóknir & greining (2005).

Tölur fyrir Reykjavík frá 1974 eru greindar eftir aldri en síðari tölur eru greindar eftir bekk.

 

Heimildir:

Jón Sigurðsson (1975) Reykingavenjur barna og unglinga í Reykjavík. Reykjavík: Borgarlæknisembættið.

Rannsóknir & greining (2005) Vímuefnaneysla ungs fólks. Niðurstöður rannsókna meðal nemenda í 10. bekk vorið 2005. Reykjavík: Rannsóknir & greining.

Stefán Hrafn Jónsson, Þóroddur Bjarnason, Inga Dóra Sigfúsdóttir, Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, Jón Sigfússon (2003) Vímuefnaneysla íslenskra unglinga 2003: Niðurstöður rannsókna á vímuefnaneyslu nemenda í 10. bekk grunnskóla 1995 - 2003. Reykjavík: Rannsóknir & greining ehf.

Þóroddur Bjarnason og Stefán Hrafn Jónsson (2004) The 2003 Icelandic School Survey Project on Alcohol and Other Drugs: Technical Report. Stokkhólmur: Centralförbundet för alcohol och narkotikaupplysning.

Þórólfur Þórlindsson, Inga Dóra Sigfúsdóttir, Jón Gunnar Bernburgh og Viðar Halldórsson (1998) Vímuefnaneysla ungs fólks. Reykjavík: Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica