Sími : 5 800 900
Tannvernd

Könnun á tannfræðslu og flúorskolun í grunnskólum

15.12.2005

Vorið 2001 fengu alls 120 grunnskólar senda til sín könnun þar sem spurt var um tannfræðslu og flúorskolun

Inngangur
Tannheilsudeild Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins hefur staðið fyrir tannfræðslu í grunnskólum frá því árið 1988. Tannfræðslan hefur farið fram með þeim hætti að tannfræðingar eru ráðnir í verktakavinnu til að taka að sér ákveðin landssvæði og kynna fræðsluefni í grunnskólum og leikskólum á því svæði. Eru það að jafnaði sömu tannfræðingar sem sinna tilteknum svæðum ár eftir ár. Öll skipulagning og hönnun á fjölbreyttu kennsluefni fyrir ólíka aldurshópa hefur farið fram hjá tannheilsudeild. Með því hefur verið tryggt að öll fræðsla er sambærileg.

Grunnskólar og leikskólar: Hvert barn hefur að jafnaði fengið tannfræðslu annað hvert ár. Helstu þættir í þessari fræðslu eru: form og uppbygging tanna, hlutverk tanna, tannskiptin, tannskemmdir, tannholdsbólga, góðar og slæmar matarvenjur, munnhirða og heilbrigðar tennur.

Auk fræðslunnar í leikskólum og grunnskólum hefur fræðsla farið fram á vegum tannheilsudeildarinnar á heilsugæslustöðvum og sjúkrastofnunum.

Heilsugæslustöðvar: Haldnir hafa verið fræðslufundir með starfsfólki á öllum heilsugæslustöðvum. Áhersla hefur verið lögð á fræðslu til þeirra er annast ungbarnaeftirlit og skoðanir á þriggja og fimm ára börnum. Helstu þættir í fræðslu eru: form og uppbygging tannanna, tannskipti, munnhirða/flúor, tannskemmdir, áhrif ofnotkunar á snuði og góðar og slæmar matarvenjur.

Sjúkrastofnanir (aldraðir, sjúkir og þroskaheftir): Fræðslufundir hafa verið haldnir á fjölmörgum stofnunum, bæði fyrir starfsfólk og vistfólk þar sem því hefur verið viðkomið. Helstu þættir í fræðslu: Tennur og umhverfi þeirra, tannskemmdir/tannholdsbólga, slímhúðin (munnþurrkur, sveppasýkingar o.fl), munnhirða, gervitennur (heilgómar/tannpartar), sár í slímhúð v/gervitanna, þrif á gervitönnum og góðar og slæmar matarvenjur.

Fræðsla á heilsugæslustöðvum og sjúkrastofnunum var markviss á árunum 1990 til 1995 en frá þeim tíma hefur hún verið takmörkuð vegna fjárskorts. Mikilvægt er að auka til muna þjónustu við þessa hópa.

Tannverndarsjóður hefur greitt fyrir þessa fræðslu og fræðsluefnið hefur jafnframt verið gefið út á kostnað sjóðsins. Tannverndarsjóður er 10 milljónir og hefur verið óbreyttur að krónutölu frá því árið 1991. Kostnaður við gerð fræðsluefnis og launakostnaður tannfræðinga hefur aukist verulega á síðastliðnum 10 árum og er því svo komið að ekki er mögulegt að senda út tannfræðinga á öll þau svæði sem upphaflega var áætlað á hverju skólaári sökum fjárskorts. Gagnger endurskoðun á tannfræðslu á vegum Tannverndarsjóðs fer nú fram í tannheilsudeild HTR. Því var ákveðið að leggja formlegt mat á þá tannfræðslu sem fer fram á vegum tannheilsudeildarinnar í grunnskólum landsins.


Efniviður og aðferðir
Vorið 2001 var send út könnun til þeirra grunnskóla sem höfðu fengið til sín tannfræðing með tannfræðslu á vegum tannheilsudeildar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins veturinn 2000 til 2001.

Markmið þessarar könnunar var að leggja mat á tannfræðslu í grunnskólum, bæði árangur og gæði fræðslunnar, sem og mikilvægi að mati starfsmanna í skólum. Einnig að athuga hvort börnum stæði flúorskolun til boða og ef svo væri hversu oft.

Alls fengu 120 grunnskólar senda könnunina og af þeim bárust 87 svör eða um 72% svarhlutfall. Könnunin samanstóð af 7 krossaspurningum og einni opinni spurningu sem var svohljóðandi: Hefur þú einhverjar ábendingar sem þú telur að geti nýst við skiplagningu þessa starfs? Ef svo er, vinsamlegast skráðu þær hér. Enn er verið að vinna úr skriflegum athugasemdum. Hafa ber í huga að þær niðurstöður sem kynntar eru hér eru frumniðurstöður og mun frekari úrvinnsla fara fram þegar öll gögn hafa borist.


Niðurstöður
Eftirfarandi er dreifing svörnunar við krossaspurningunum í prósentum.
niðurstöður 1

niðurstöður 2

niðurstöður 3

niðurstöður 4






niðurstöður 5











.


Flúorskolun

niðurstöður 6

Umræður
Frumniðurstöður sýna að þeir starfsmenn grunnskólanna sem svara spurningunum eru almennt jákvæðir í garð tannfræðslunnar og telja hana mikilvæga. Athyglisvert er að flúorskolun fer aðeins fram hjá 75% þeirra sem svöruðu, þrátt fyrir að öllum heilsugæslustöðvum á landinu beri að sinna flúorskolun í grunnskólum.


Helga Ágústsdóttir, cand.odont.,MS, MPH, PhD.
Jóhanna Laufey Ólafsdóttir, tannfræðingur.
Berglind Eva Ólafsdóttir, BA sálfræði, kerfisfræðingur TV.

Heimild: Ágústsdóttir H, Ólafsdóttir JL, Ólafsdóttir B. Könnun á tannfræðslu og flúorskolun í grunnskólum. Tannlæknablaðið 2001, 32-33.








Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica