Sími : 5 800 900

Kannanir á mataræði

Mataræði íslenskra ungbarna 2005-2007 - 29.10.2010

Mataræði íslenskra ungbarna. Smellið á myndina til að opna skýrsluna.

Niðurstöður rannsóknar á mataræði, vexti og járnbúskap ungbarna 2005-2007 unnin fyrir Rannsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala – Háskólasjúkrahús árið 2008.
Eftir: Ingu Þórsdóttur, Ásu Völa Þórisdótturog Gest I. Pálsson

Lesa meira
 

Hvað borða íslensk börn á leikskólaaldri? - 30.10.2009

Hvað borða íslensk börn á leikskólaaldri? Smella á myndina til að skoða skýrslunaKomin er út skýrsla með niðurstöðum könnunar á mataræði 3ja og 5 ára barna á höfuðborgarsvæðinu árið 2007. Rannsóknastofa í næringarfræði (RÍN) og Lýðheilsustöð stóðu að rannsókninni en hún var unnin af RÍN 2007-2008. Rannsóknin leiddi í ljós bæði jákvæðar og neikvæðar hliðar á mataræði barnanna, s.s. að fiskneysla væri í samræmi við ráðleggingar en langt væri í land með ávaxta- og grænmetisneyslu.

Lesa meira
 

Hvað borða íslensk börn og unglingar? Ávaxta- og grænmetisneysla með því lægsta í Evrópu - 15.5.2006

Kynningarfundur var haldinn 15. maí í tilefniSmella á mynd til að skoða skýrslu af útkomu nýrrar skýrslu um niðurstöður rannsóknar á mataræði 9 og 15 ára barna og unglinga, sem Rannsóknastofa í næringarfræði og Lýðheilsustöð standa að en rannsóknin var unnin af RÍN 2003-2004. Höfundar skýrslunnar eru Inga Þórsdóttir, prófessor og Ingibjörg Gunnarsdóttir, dósent við Háskóla Íslands.

Lesa meira
 

Hvað borða Íslendingar? - 26.3.2004

Þann 24. mars 2003 voru kynntar helstu niðurstöður úr Landskönnun á mataræði 2002, en hliðstæð rannsókn hefur ekki farið fram frá árinu 1990. Alls tóku 1366 manns á aldrinum 15-80 ára þátt í könnuninni og var svarhlutfall 70,6%.

Lesa meira
 

Samanburðarrannsókn á neyslu grænmetis, ávaxta, fisks og grófra brauða á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndunum - 25.3.2004

Rannsóknin fór fram samtímis í öllum löndunum 8 árið 2002 og var unnin á samræmdan hátt. Niðurstöðurnar eru kynntar í skýrslu sem kom út í nóvember 2003. Hægt að panta skýrsluna um NORBABREEN-rannsóknina 2002 frá Norrænu ráðherranefndinni. Lesa meira
 

Könnun á mataræði og lífsstíl íslenskra kvenna á meðgöngu - 24.3.2004

Könnun á mataræði og lífsstíl íslenskra kvenna á meðgöngu fór fram á árunum 1999-2001 og náði úrtakið til 549 kvenna í Reykjavík. Rannsóknin var samstarfsverkefni Lífeðlisfræðistofnunar Háskóla Íslands, Manneldisráðs Íslands og Miðstöðvar mæðraverndar. Lesa meira
 

Mataræði íslenskra ungbarna - 22.3.2004

Kannað var mataræði íslenskra ungbarna á rannsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala á árunum 1995-2000. Þátttakendur voru 127 nýfædd börn (70 í rannsóknarhóp og 57 í viðmiðunarhóp) á fjórum fæðingardeildum víðs vegar um landið. Skýrsla hefur verið gefin út með helstu niðurstöðum, Mataræði íslenskra ungbarna. Lesa meira
 

Næring barna og unglinga - 21.3.2004

Ransóknastofa í næringarfæði við Háskóla Íslands hefur kannað mataræði ungbarna (sjá hér á síðunni), 2 ára, 6 ára, 9 ára og 15 ára barna og unglinga. Rannsóknirnar hafa farið fram á árunum 1995-2004.  Lesa meira
 

Könnun á mataræði ungs skólafólks 1992-1993 - 20.3.2004

Könnun á mataræði íslenskra skólabarna var gerð veturinn 1992-1993. Þátttakendur voru 1166 börn og unglingar úr 5., 7. og 9. bekkjum grunnskóla, bæði úr þéttbýli og strjálbýli. Könnuninni var meðal annars ætlað að svara þeirri grundvallarspurningu hvort börnin okkar fái nægilega holla og næringarríka fæðu. Lesa meira
 

Könnun á mataræði Íslendinga 1990 - 15.3.2004

Könnun á mataræði landsmanna var gerð árið 1990. Þátttakendur voru 1240 talsins á aldrinum 15-80 ára, víðsvegar af landinu. Tekin voru viðtöl þar sem þátttakendur voru spurðir um almennt mataræði, máltíðaskipan og aukabita og hvaða fæðutegundir séu algengastar á hverjum tíma dags. Lesa meira
 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica