Algengar spurningar og svör
Hér er að finna algengar spurningar frá þátttakendum um framkvæmd rannsóknarinnar og svör starfsmanna rannsóknarinnar við þessum spurningum. Reynt er að svara spurningum þátttakenda eins fljótt og auðið er. Ef þú finnur ekki svar við þinni spurningu hér fyrir neðan er þér velkomið að hafa samband í síma 842-0919 eða senda tölvupóst á rannsoknir@lydheilsustod.is
Búið er að draga í happdrætti rannsóknarinnar og afhenda vinningshöfum sína vinninga*
Fyrsta vinning hlaut þátttakandi með happdrættisnúmerið 1340 og annan vinning hlaut þátttakandi með happdrættisnúmerið 519.
Enn um sinn verður tekið við útfylltum spurningalistum þótt dregið hafi verið í happdrætti.
* Skrifað 20. janúar 2010
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Á nýju ári verður áfram tekið á móti svörum þátttakenda í framhaldsrannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga 2009
Rannsóknin hefur hlotið góðar viðtökur þátttakenda og nú í árslok 2009 hefur stór hluti þeirra skilað inn svörum.
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Spurningar og svör
Hverjir fá sendan spurningalista?
Allir þeir sem tóku þátt í sambærilegri könnun árið 2007 og samþykktu þar þátttöku í framhaldsrannsókn fá sendan spurningalista.
Þarf ég að svara öllum spurningalistanum í einu?
Sumum finnst betra að svara spurningalistanum í 2–3 lotum en aðrir vilja helst klára að svara honum í einni lotu. Þér er frjálst að velja það sem hentar þér best.
Er skylda að taka þátt?
Til þess að rannsóknin nýtist sem best er mikilvægt að fá svör frá sem flestum þátttakendum. Enginn er skyldugur til þess að taka þátt. Ef þú vilt ekki taka þátt í rannsókninni er einfaldast fyrir þig að senda spurningalistann tóman til baka og þá verður nafn þitt tekið af útsendingarskrá.
Hvar finn ég póstkassa eða pósthús?
Á heimasíðu Póstsins getur þú fundið næsta pósthús eða póstkassa við þig. Póstburðargjald er greitt af viðtakanda.
Listi yfir póstkassa á höfuðborgarsvæðinu
Þátttakendur á höfuðborgarsvæðinu fengu sendan lista yfir staðsetningu póstkassa og pósthúsa. Við prentun á þessum lista brengluðust allir íslenskir stafir. Stjórnendur rannsóknarinnar biðjast afsökunar á þessum óheppilegu mistökum og vona um leið að þetta komi ekki að sök.
Hvað ef könnunin á ekki við um mig?
Spurningarnar eru orðaðar þannig að allir eigi að geta fundið svar við spurningunum sama hvor þeir eru hressir eða kenna sér meins.
Mikilvægt er að fá svör frá fjölbreyttum hópi fólks og því æskilegt að sem flestir sem fá sendan spurningalista svari honum. Sumir hafa haft á orði að þeir séu óvenju hressir eða óvenju slappir síðustu daga og velta því fyrir sér hvort þeir eigi að svara. Við viljum endilega fá svar frá öllum, lika þeim sem eru hraustir.
Spurning 78
Í spurningu 78, þar sem spurt er hversu margir búa á heimili þínu að þér meðtalinni/meðtöldum, vantar svarmöguleikann „3“. Þar sem þrír einstaklingar í viðkomandi aldursflokki búa á heimilinu ertu vinsamlegast beðin/n um að setja kross á mill kassanna fyrir „2“ og „4“ einstaklinga. DÆMI:
