Ýtarefni
Félagsleg staða ungmenna utan framhaldsskóla og samanburður við jafnaldra þeirra í framhaldsskólum
Þann 29. okt. sl. voru kynntar niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar á högum ungmenna á aldrinum 16-19 ára sem ekki stunda nám í framhaldsskólum. Rannsóknin var unnin fyrir Lýðheilsustöð, Áfengis- og vímuvarnaráð, Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur, Rauða kross Íslands og Félagsþjónustuna í Reykjavík.
Starfsfólk Rannsóknar og greiningar ehf. sá um framkvæmdina.
Starfsfólk Rannsóknar og greiningar ehf. sá um framkvæmdina.
Í rannsókninni er reynt að draga upp mynd af högum þeirra ungmenna sem standa utan framhaldsskólans í samanburði við ungmenni sem stunda nám í framhaldsskólum. Hér er um allflókinn samanburð að ræða sem fáir hafa ráðist í áður vegna þess hve erfitt er að ná til þess hóps sem stendur utan skóla á þessu aldurskeiði. Er hér um ákveðið brautryðjandastarf að ræða þar sem ekki er vitað um aðra slíka rannsókn, hvorki hér heima né erlendis.
