Vímuefnaneysla íslenskra unglinga
Niðurstöður rannsókna á vímuefnaneyslu nemenda í 10. bekk grunnskóla 1995 - 2003.
Skýrslan er unnin úr íslenska hluta ESPAD rannsóknarinnar, sem er samevrópsk könnun um áfengisneyslu, reykingar og neyslu ólöglegra vímuefna.
Könnunin nú í ár nær til nemenda í tíunda bekk í 35 löndum og var lögð fyrir á Íslandi í marsmánuði 2003. Könnunin er ein umfangsmesta rannsókn sem gerð hefur verið á vímuefnaneyslu ungs fólks í Evrópu. Niðurstöður íslenska hluta rannsóknarinnar í ár eru í skýrslunni bornar saman við sambærilegar rannsóknir á frá árinu 1995. Á kynningunni verður skoðuð breyting á reykingavenjum íslenskra ungmenna auk þess sem mat verður lagt á heildarfjármagn sem nemendur reykja fyrir árlega. Niðurstöður nokkurra mælinga á áfengisneyslu verður skoðuð yfir tíma. Tölur um aðgengi að og neyslu ólöglegra vímuefna verða kynntar í nokkru nýju ljósi nú en áður.
Rannsóknir á áfengis- og vímuefnaneyslu unglinga er mikilvægur hluti af forvarnarstarfi víða um land og því mikilvægt að þeir sem standa að forvörunum kynni sér efni þessarar skýrslu. Í skýrslunni er m.a. skoðað hvernig neysla ýmissa vímuefna fylgir árgöngum sem eykur mikilvægi þess að huga að forvörnum snemma.
