Kynntar niðurstöður könnunar á neysluvenjum framhaldsskólanema
Fundurinn var haldinn þriðjudaginn 15. nóvember kl. 15 í Hinu húsinu, Pósthússtræti 3-5.
Kynntar voru helstu breytingar sem verða á venjum nemenda 10. bekkjar grunnskóla árið 2004 frá vormánuðum þar til þeir hefja nám í framhaldsskóla að hausti.
Eins voru bornar saman niðurstöður tveggja kannana sem Rannsóknir og greining lagði fyrir alla framhaldsskólanema í landinu í október árin 2000 og 2004 í samvinnu við Lýðheilsustöð.
Meðal þess sem niðurstöður könnunarinnar sýna er að:
- Sumarið eftir tíunda bekk virðist sérstakur áhættutími hvað varðar upphaf reykinga, ölvunardrykkju, notkunar áfengis og annarra vímuefna
- Jafnvel þótt færri framhaldsskólanemar reyki nú en árið 2000, bætist verulega í hóp þeirra sumarið áður en framhaldsskólinn hefst
- Sú jákvæða breyting sem hefur orðið í efri bekkjum grunnskóla síðastliðin ár, þar sem dregið hefur úr drykkju og ölvunardrykkju, er ekki jafn sýnileg meðal framhaldsskólanema.
- Mun fleiri nemendur í framhaldsskóla reykja ef annað eða báðir foreldrar þeirra er reykingafólk
- Færri strákar reykja í framhaldsskóla árið 2004 en árið 2000, en meðal stelpna hefur orðið lítil breyting á þessu tímabili.
- Almennt er lítil breyting á notkun áfengis eða ólöglegra vímuefna í framhaldsskólum frá 2000 til 2004, þó virðist notkun harðari efna aukast nokkuð á þessu tímabili.
- Stöðug aukning er á fjölda þeirra sem hafa prófað hass eftir að komið er í framhaldsskóla. Þó hafa flestir nemendur aldrei prófað nein ólögleg vímuefni.
Niðurstöður könnunarinnar leiða margt fleira áhugavert í ljós um venjur íslenskra framhaldsskólanema sem dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir kynnti á fundinum.
Hildur Hafstein, verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð, fjallaði einnig stuttlega um áhrif foreldra á lífsstíl unglinganna og kynnti í lokin nýjan bækling SAMAN hópsins fyrir foreldra barna í framhaldsskólum.
.
