Ýtarefni
Áfengissala á Íslandi - Sala á mismunandi tegundum 1985-2006 mæld í lítrum af hreinum vínanda á hvern íbúa 15 ára og eldri
Myndin hér fyrir neðan sýnir hvernig áfengissala hefur þróast frá 1985 til 2005 eftir flokkum áfengis.
Bjórsalan minnkaði frá 1990-1993 en hefur síðan farið vaxandi. Sala á léttvíni var stöðug en hefur aukist frá 1996. Á sama tíma hefur dregið úr sölu á sterku víni, en árið 2002 var sala vínanda úr léttvíni í fyrsta sinn meiri en úr sterku áfengi. Sala á gosblönduðum drykkjum hefur verið nokkuð lítil í samanburði við aðrar áfengistegundir en stöðug. Heildarneysla er samkvæmt þessum tölum að aukast.
Sala mismunandi áfengistegunda á Íslandi 1985-2006 mæld í lítrum af hreinum vínanda á hvern íbúa 15 ára og eldri.
Smelltu á mynd til að stækka.
Heimild: Hagstofa Íslands (2007)

