Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Manneldi

Starfsemi Lýðheilsustöðvar á sviði næringar skiptist í fræðslu, ráðgjöf, heilsueflingarverkefni og rannsóknir.

Verkefnisstjórar:

Hólmfríður ÞorgeirsdóttirHólmfríður Þorgeirsdóttir

Elva Gísladóttir

Elva Gísladóttir

Öll starfsemi sem áður féll undir Manneldisráð hefur flust til Lýðheilsustöðvar. Manneldisráð starfar áfram sem fagráð og ráðgjafi fyrir þennan málaflokk hjá Lýðheilsustöð.

Lýðheilsustöð vinnur fræðsluefni um hollustu og næringu fyrir börn, fullorðna og aldraða til notkunar í skólum, heilsugæslu og fyrir almenning í landinu og á í samstarfi við félagasamtök, stofnanir, fyrirtæki og skóla um heilsueflingu, næringu og hreyfingu.

Á vegum Lýðheilsustöðvar eru unnar kannanir á mataræði landsmanna og safnað tölfræðilegum upplýsingum um neyslu og sölu matvara í landinu ár hvert. Einnig á stöðin í samvinnu við erlendar og innlendar rannsóknarstofnanir, háskóla og heilbrigðisstofnanir um rannsóknir á sviði næringar og heilsu.

Lýðheilsustöð er faglegur ráðgjafi stjórnvalda um manneldismál og birtir ráðleggingar um mataræði, næringarefni og hreyfingu í samvinnu við Manneldisráð.

Hvar er efni um næringu og holdafar að finna?

Hnapparnir til vinstri og myndirnar í báðum dálkum vísa beint í efni sem tengist næringu og holdafari. Fliparnir fyrir ofan gera það einnig en vísa jafnframt á aðra málaflokka sem heyra undir Lýðheilsustöð.



Deildu með öðrum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica