Sími : 5 800 900
Tannverndarvika

Tannverndarvikan

Mikið hefur áunnist í tannverndarmálum og með góðri munnhirðu og hollu mataræði leggjum við grunninn að góðri tannheilsu. Fyrsta vikan í febrúar ár hvert er tileinkuð tannvernd og þá eru landsmenn minntir á mikilvægi þess að búa við góða tannheilsu allt lífið, m.a. er þetta gert í góðu samstarfi við leik- og grunnskóla.

2012

Tannverndarvikan 2012 hefst sunnudaginn 29. janúar og stendur til og með 4. febrúar. Þema vikunnar tengist að þessu sinni sykri í matvælum/sælgæti og sykurneyslu.

2011

Tannverndarvikan 2011 hefst 30. janúar og stendur til og með 5. febrúar. Lesa um tannverndarviku 2011.

Barmmerki_2_vatnsglasÍ tilefni af tannverndarviku 2011 hefur Lýðheilsustöð gefið út veggspjaldið Þitt er valið þar sem lýst er á myndrænan hátt innihaldi algengustu vatns-, ávaxta- og gosdrykkja á markaðnum og áhrifum innihaldsins á tannheilsu.
Einnig hefur verið gefið út fræðslumyndband um umhirðu tanna barna, jafnt ungra sem þeirra eldri, og það talsett á ensku, rússnesku og pólsku, auk íslensku. Nýtt fræðsluefni er svo gjarnan gert fyrir leikskólabörn og yngstu börnin í grunnskóla í tannverndarvikunni og hefur það verið sent til allra leikskóla á landinu.

2010

Tannverndarvika, 2010. Smellið á mynd til að stækkaHin árlega tannverndarvika, sem Lýðheilsustöð stendur fyrir, er dagana 1.- 5. febrúar. Að þessu sinni er athyglinni beint sérstaklega að tannvernd barna. Nýtt, lifandi fræðsluefni hefur verið útbúið, einkum ætlað foreldrum og öðrum sem sinna tannvernd og tannhirðu barna. Að auki er á ýmsan annan hátt vakin athygli á mikilvægi tannverndar og góðrar tannhirðu, s.s. með miðlun upplýsinga og fræðslu til foreldra, allra skóla, heilsugæslu, tannlækna og fleiri. (Nánar um efni tannverndarviku 2010)

2009

Tannverndarvikan 2009 hefst 1. febrúar og í þeirri viku er athyglinni beint að mikilvægi daglegrar notkunar tannþráðar í góðri munnhirðu og eru landsmenn hvattir til að „taka upp þráðinn“. Í tilefni af tannverndarvikunni var gert stutt myndband þar sem á lifandi hátt eru kennd handbrögðin við notkun tannþráðar, ennfremur útbúið efni um tannþráð til dreifingar í skólum landsins og á vefsíðu Lýðheilsustöðvar var gerð sérstök fræðslusíða um tannþráð.

2008

Munnhirða fólks með sérþarfir - framhlið DVD Í tilefni af tannverndarviku 2008 var frumsýnd fræðslumynd um munnhirðu fólks með sérþarfir sem Lýðheilsustöð og Heilsugæsla höfuborgarsvæðis/Miðstöð tannverndar létu gera undir umsjón Hólmfríðar Guðmundsdóttur, tannlæknis. Myndin hefur verið gefin út á margmiðlunardiski sem dreift var um land allt, auk þess sem hægt er að panta hann hjá Lýðheilsustöð.

2007

Drekkum vatn, skilti„Drekkum vatn“ var þema tannverndarvikunnar það árið til að minna á að vatn er besti svaladrykkurinn. Niðurstöður landsrannsóknar á tannheilsu íslenskra barna og ungmenna á aldrinum 6, 12 og 15 ára sýndi að tannheilsuvandi er mikill hjá þessum hópi og glerungseyðing vaxandi því hún mælist nú í einhverri tönn hjá 30% 15 ára unglinga. Ein aðalorsök glerungseyðingar er mikil og tíð neysla gosdrykkja – með eða án sykurs – en neysla slíkra drykkja er mjög mikil hér á landi. Vatn, ferskt og kolsýrt (óvítamínbætt), veldur ekki glerungseyðingu.
Nánar um tannverndarvikuna 2007

2006

tannburstajaxlÍ tannverndarvikunni árið 2006 voru frumsýndar nýjar auglýsingar þar sem kynntur var til sögunnar „Jaxlinn“; teiknimyndapersóna kemur á skemmtilegan og lifandi hátt til skila heilræðum um tannhirðu. Einnig var athygli vakin á tveimur stuttar hreyfimyndum sem sýna vel hvernig beita á tannbursta og tannþræði.
Nánar um tannverndarvikuna 2006

2005

Tannverndarvikan árið 2005 var helguð umfjöllun um tannheilsu og tóbak. Langvarandi reykingar eða notkun á munntóbaki getur haft mikil áhrif á munnheilsu hvers og eins. Aukin hætta er á ýmsum munnsjúkdómum og tennurnar litast gular. Einnig er í munntóbaki sætuefni sem geta valdið tannskemmdum og ertandi efni sem geta valdið óafturkræfum skemmdum á tannholdi og slímhúð.

2004

Þema tannverndarvikunnar var að þessu sinni skyndihjálp vegna tannáverka.
Af því tilefni gáfu Tannverndarráð og tannheilsudeild Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins út, í samstarfi við Ásgeir Sigurðsson tannlækni, Tannlæknafélag Íslands og Rauða Kross Íslands, veggspjald með leiðbeiningum varðandi skyndihjálp vegna áverka á fullorðinstennur sem dreift var m.a. til grunnskóla, íþróttamiðstöðva, sundstaða og heilsugæslustöðva.
Veggspjaldið (PDF)
Sambærilegar upplýsingar (PDF), ætlaðar efsta stigi grunnskóla og framhaldsskólum (2008)

Grein eftir Ólaf Höskuldsson barnatannlækni, birt í Morgunblaðinu þann 5. febrúar 2004, í tengslum við þeima tannverndarvikunnar.
Pistill eftir Ásgeir Sigurðsson tannlækni og sérfræðing í tannholsfræðum. Birt í Morgunblaðinu - Daglegt líf á vegum Landlæknisembættisins.



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica