Sími : 5 800 900
Fyrri starfsemi

Saga Tóbaksvarnarráðs 1969-1996

Þorvarður Örnólfsson tók saman

20.6.2004

Þorvarður Örnólfsson tók saman

1969
· Fyrsta lagaákvæði (í lögum nr. 63/1969) sem miðar, gagngert að því að draga úr tóbaksreykingum: Viðvörun á sígarettupökkum um skaðsemi reykinga.

1971
· Breytingar á lögum nr. 63/1969. Gildistaka 1. janúar 1972. Viðvörun felld niður. Bannaðar tóbaksauglýsingar í fjölmiðlum og utan dyra. 2 ‰ af brúttósölu tóbaks til auglýsinga í fjölmiðlum um skaðsemi reykinga. Nefnd til að sjá um auglýsingarnar.

1972
· Samstarfsnefnd um reykingavarnir (1972-1977).

1975
· Tvær öflugar varnarvikur, vor og haust.

1976
· "Herferð gegn reykingum" í grunnskólum (1976- ).
· Reyklaust skákmót, "Skák í hreinu lofti". (Aftur 1981).

1977
· Barátta skólabarna gegn tóbaksauglýsingum í verslunum.
· Sjónvarpsnámskeið, "Hættum að reykja".
· Lög um ráðstafanir til að draga úr tóbaksreykingum, nr. 27/1977. Gildistaka 1. júní. Allar tóbaksauglýsingar, beinar og óbeinar, bannaðar. Ráðherra fékk heimild til að banna reykingar í húsakynnum og farartækjum fyrir almenning. Nefnd til að annast framkvæmd laganna og aðrar tóbaksvarnir. Árlegt framlag á fjárlögum til tóbaksvarna.
· Samstarfsnefnd um reykingavarnir (1977-1980).

1978
· Ráðstefna um reykingar og heilsufar (september).

1979
· Fyrsti reyklausi dagurinn, 23. janúar.

1980
· Reykingavarnanefnd (1980-1982). Sérstakt hlutverk: Endurskoðun laga nr. 27/1977.

1982
· Reykingavarnanefnd (1982-1984).
· Annar reyklausi dagurinn.
· Fyrsta íslenska heimildarmyndin um afleiðingar reykinga, "Ekki ég".

1983
· Frumvarp til laga um tóbaksvarnir lagt fyrir Alþingi.

1984
· Reglugerð, bann við reykingum í atvinnuflugi innanlands, nr. 251, 22. maí 1984.
· Lög um tóbaksvarnir, nr. 74, 28. maí 1984. Gildistaka 1. janúar 1985. Tóbaksvarnanefnd til fjögurra ára í senn. Viðvarnanir á umbúðir alls tóbaksvarnings.Algert auglýsingabann ítrekað og nánar skýrt. Bann við tóbakssölu til einstaklinga yngri en 16 ára. Takmarkanir á tóbaksreykingum í afgreiðslu- og þjónustuhúsnæði fyrir almenning, í ýmsum heilbrigðis- og uppeldisstofnunum, í almenningsfarartækjum og á vinnustöðum. Regluleg fræðsla um skaðsemi tóbaksneyslu og aðstoð við að hætta að reykja. 2 ‰ af brúttósölu tóbaks til tóbaksvarna. Ákvæði um eftirlit og viðurlög.
· Tóbaksvarnanefnd (1984-1988).
· Reglugerð um viðvörunarmerkingar á tóbaki, nr. 499, 28. desember 1984. Komst í framkvæmd á miðju ári 1985.

1985
· Reglur um tóbaksvarnir á vinnustöðum, nr. 487, 24. desember 1985.

1987
· Þriðji reyklausi dagurinn. (Síðan árlega.)

1988
· Tóbaksvarnanefnd (1988-1992). Sérstakt verkefni: Endurskoðun laga nr. 74/1984.

1991
· Íslensk heilbrigðisáætlun. (8. gr. um tóbak).

1992
· "Vika í hreinu lofti". Varanlegt átak um reyklausa vinnustaði.
· Tóbaksvarnanefnd (1992-1996).

1993
· Reglugerð, bann við reykingum í Evrópuflugi, nr. 33, 21. janúar 1993.
· Reglur um tóbaksreykingar um borð í skipum, nr. 124, 10. mars 1993.

1994
· Kvikmyndahúsin reyklaus 1. desember.

1995
· Reglugerð, bann við reykingum í öllu atvinnuflugi með farþega milli Íslands og annarra ríkja, nr. 86, 30. janúar 1995. Gildistaka 26. mars 1995.
· Reglugerð um viðvörunarmerkingar á tóbaki, nr. 433, 20. júlí 1995.

1996
· Breytingar á lögum nr. 74/1984 um tóbaksvarnir, nr. 101, 14. júní 1996. Gildistaka 1. júlí 1996. Upplýsingar á sígarettupökkum um tjöru- og nikótíninnihald. Bann við tóbakssölu til einstaklinga yngri en 18 ára. Bann við fínkornóttu neftóbaki og öllu munntóbaki að undanskildu skrotóbaki. Algert bann við reykingum í flestum skólum og heilbrigðisstofnunum. 7‰ af brúttósölu tóbaks til tóbaksvarna.
· Tóbaksvarnanefnd (1996-2000).



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica