SAMAN-hópurinn
SAMAN-hópurinn er samstarfshópur um forvarnir sem stuðla að velferð barna.
Í hópnum er fólk sem vinnur með og fyrir börn og unglinga. Tengist sú vinna einkum forvörnum, uppeldi, menntun, meðferðar- og ráðgjafarúrræðum. Meginmarkmiðin með starfi hópsins er að vinna saman að því að styðja og styrkja foreldra í uppeldishlutverkinu.
Yfirlit
SAMAN-hópurinn vekur m.a. athygli á hættum sem ógna börnum og unglingum, hvetur til jákvæðra samskipta fjölskyldunnar og vekur athygli foreldra á að þeir beri ábyrgð á börnum sínum allt til 18 ára aldurs. Því er beint til foreldra að virða reglur um útivistartíma, kaupa ekki eða bjóða unglingum áfengi sem og að leyfa ekki eftirlitslaus partý. Einnig er bent á atburði þar sem líklegt er að vímuefna verði neytt. Dæmi um slíka atburði eru lok samræmdra prófa, 17. júní, útihátíðir um verslunar-mannahelgi, menningarnótt og áramót. Skilaboðin eru alltaf skýr og jákvæð og meginstef þeirra er: ,,fjölskyldan saman”.
Að þessum verkefnum hefur SAMAN-hópurinn unnið með því að birta auglýsingar í fjölmiðlum, á strætisvögnum og veggspjöldum, útbúa og senda póstkort í tilefni af lokum samræmdra prófa, áramótum og fleiru.
Samverustundir fjölskyldunnar – besta forvörnin
Niðurstöður rannsókna hafa leitt í ljós að samvera foreldra og barna dregur verulega úr líkum á því að unglingar neyti vímuefna. Því meiri tíma sem unglingur ver með fjölskyldu sinni því minni líkur eru á því að hann neyti vímuefna. Óhætt er því að segja að samvera foreldra með börnum sínum sé besta forvörnin.
Saman-hópurinn hóf átak í júní 2003 þar sem áherslan er á gildi samverustunda fjölskyldunnar og vill hópurinn með því hvetja til þess að fjölskyldan verji sem mestum tíma saman. Ekki síst eru skilaboðin þau að ekki þurfi að leita langt yfir skammt til að eiga góðar stundir saman. Að horfa saman á sjónvarp, borða saman, ferðast saman hér heima eða bara að njóta þess að vera saman, getur orðið að ógleymanlegri og dýrmætri stund.
Sumarið er tíminn þegar foreldrar, börn og unglingar eiga mestan frítíma. Hins vegar hefur reynslan sýnt að sumarið er líka oft sá tími sem unglingar byrja að nota tóbak og/eða vímuefni. Hópurinn hvetur því til þess að foreldrar og börn (á aldrinum 0-18 ára) verji tíma saman í fríinu og að samverustundirnar stuðli að jákvæðum og sterkum tengslum. En því miður er það oft svo að í stað þess að ferðast og gera eitthvað skemmtilegt saman þá sundrast fjölskyldan – oft vegna þess að unglingarnir vilja ekki vera með. Þá má minna á að foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum allt til 18 ára aldurs.
SAMAN-hópurinn fékk Þórarinn Leifsson, hönnuð (www.totil.com), til að vinna með sér að átakinu og árangurinn eru veggspjöld/auglýsingar með þessum skilaboðum sem sjá má hér á síðunni. Veggspjöldunum var dreift um allt land og fóru að sjást víða frá og með mánaðarmótunum júní-júlí.
Umfjöllun og greinar um átaksverkefnið
- Umfjöllun í Fjarðarpóstinum 3.7.2003
- Grein í Morgunblaðinu 5.7 2003
- Viðtal í Morgunblaðinu í júní 2003
Grein í Morgunblaðinu 29.7 2003 - Grein í Morgunblaðinu 31.7 2003
- Grein í Morgunblaðinu 30.7 2003
- Kynning í Vikunni júlí 03
Samstarfsaðilar
Þeir aðilar sem standa að SAMAN-hópnum eru:
Akureyrarbær – félagssvið
Fulltrúi: Bryndís Arnar, forvarnarfulltrúi
akureyri.is
Félagsþjónustan í Kópavogi
María Þorsteinsdóttir, forvarnafulltrúi innan fjölskyldudeildar
kopavogur.is
Félagsþjónustan í Reykjavík,
Fulltrúi: Stefanía Sörheller, verkefnisstjóri á þróunarsviði
felagsthjonustan.is
Fræðslumiðstöð í fíknivörnum
Fulltrúi: Guðni Björnsson
forvarnir.is
Garðabær
Fulltrúi: Gunnar Richardsson, forvarnafulltrúi
gardabaer.is
Götusmiðjan
Fulltrúi: Elísabet Gísladóttir
gotusmidjan.is
Hafnarfjarðarbær
Fulltrúi: Geir Bjarnason, forvarnafulltrúi
hafnarfjordur.is
Heilsugæslan í Reykjavík
Fulltrúi: Stefanía Arnardóttir, skólahjúkrunarfræðingur
hr.is
Heimili og skóli
Fulltrúi: Anna María Proppé, framkvæmdastjóri
heimiliogskoli.is
IOGT
Fulltrúi: Aðalsteinn Gunnarsson, verkefnisstjóri
iogt.is
Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur
Fulltrúi: Guðrún Arna Gylfadóttir, verkefnisstjóri Vesturgarði
itr.is
Lýðheilsustöð
Fulltrúi: Hildur Björg Hafstein, verkefnisstjóri
lydheilsustod.is
Lögreglan í Reykjavík
Fulltrúi: Guðmundur Gígja, lögreglufulltrúi í Forvarna- og fræðsludeild
lr.is
Nýleið ráðgjöf
Fulltrúi: Jón Guðbergsson
nyleid.is
Ríkislögreglustjórinn
Fulltrúi: Erna Sigfúsdóttir, lögreglufulltrúi
rls.is
SAMFOK–samband foreldrafélaga og foreldraráða í grunnskólum Rvík
Fulltrúi: Bergþóra Valsdóttir, framkvæmdastjóri
samfok.is
Vímulaus æska
Fulltrúi: Elísa B. Wíum framkvæmdarstjóri og Jórunn I. Magnúsdóttir forstöðukona
foreldrahus.is
Þjóðkirkjan
Fulltrúi: Stefán Már Gunnlaugsson,
biskup.is
Starfsemi SAMAN
Forsaga hópsins:
Um áramótin 1999-2000 tók hópur fólks sig saman og stóð að hvatningarátaki undir yfirskriftinni ,,Fjölskyldan saman á tímamótum”. Átakið fólst m.a í því að póstkortum var dreift inn á heimili landsmanna, auglýsingar birtust í ýmsum fjölmiðlum og greinar voru ritaðar í dagblöð. Átakið var endurtekið ári síðar. Í kjölfar þess ákvað hópurinn að vinna saman að forvörnum í tengslum við atburði þar sem líklegt er að aukning verði á neyslu vímuefna meðal ungmenna. Dæmi um slíka atburði eru samræmd próf, 17. júní, verslunarmannahelgi og áramót.
Markmið sem hópurinn setti starfseminni:
- að auka samstarf fólks sem vinnur að forvörnum. Þeir sem standa að hópnum eiga það sammerkt að vinna á einhvern hátt með og fyrir börn og unglinga. Tengist sú vinna einkum forvörnum, uppeldi, menntun og meðferð- og ráðgjöf.
- Hópurinn vinnur að því að vekja athygli á þeirri ógn sem börnum og unglingum stafar af útbreiðslu áfengis og vímuefna í samfélaginu, beina athygli foreldra að ábyrgð þeirra á uppeldi barna sinna og hvetja til jákvæðra samskipta fjölskyldunnar. Skilaboðum hefur verið komið á framfæri í fjölmiðlum, með umræðum og auglýsingum. Hópurinn leggur áherslu á að starf hans skili sér til allrar landsbyggðarinnar.
- Starf hópsins miðar að því að styrkja og styðja foreldra í sínu uppeldishlutverki. Skilaboðin eru um mikilvægi ábyrgðarinnar á umönnun og uppeldi barna sinna og þar er lögð áhersla á að foreldrar verji sem mestum tíma með börnum sínum. Því er beint til foreldra, með skýrum hætti, að þeir kaupi ekki eða veiti börnum áfengi – og bent á að þar setja landslög mörkin við 20 ára aldur – að virtar séu reglur um útivistartíma og bent á þær hættur sem eftirlitslaus partý, útihátíðir og neysla áfengis og annarra vímuefna setur börn þeirra í.
Fjárhagslegir bakhjarlar
Fyrst og fremst ber að nefna Forvarnasjóð ÁVVR en hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á sviði áfengis- og vímuvarna. Einnig hafa einstaka sveitarfélög lagt fram fé til starfsemi hópsins.
Hvað hefur hópurinn verið að gera og hvað er á döfinni?
Þeir atburðir sem hópurinn hefur hingað til einbeitt sér að eru lok samræmdra prófa, 17. júní, verslunarmannahelgin, menningarnótt og áramót.
Í byrjun sumars 2002 hófst kynning á skilaboðunum „18 ára ábyrgð“ en þar var veggspjöldum (sjá mynd) dreift um allt land auk þess sem átakið var kynnt rækilega í fjölmiðlum. Veggspjöldin eru fáanlega á skrifstofu ÁVVR.
Í júni 2003 hófst kynning á ,,Verum saman” skilaboðum en þar er vísað til þess að samverustundir fjölskyldunnar eru sterkasti þátturinn í að mynda þar góð tengsl og kærleik. En rannsóknir hafa sýnt að því meiri tíma sem börn, ungmenni og foreldrar verja saman þeim mun minni hætta er á að unga fólkið leiðist út í misnotkun vímuefna. (sjá rannsóknarniðurstöður).
Ný útgáfa af segulmottum, til að setja á ísskáp, með lögbundnum reglum um útivistartíma barna verður tilbúin haustið 2003. Sveitarfélögum eru boðið að setja merki sitt á motturnar og dreifa síðan til foreldra barna í ákveðnum árgöngum.
- Lok samræmdra prófa Með samstilltu átaki margra aðila undanfarin ár hefur tekist að draga stórlega úr hópamyndun og drykkju meðal barna á þessum tímamótum. Foreldrar og forráðamenn hafa verið duglegir við að taka þátt í svonefndu foreldrarölti sem er skipulagt í samstarfi við foreldrafélög skólanna, félagsmiðstöðvar og lögregluna. Lögð er áhersla á að fylgja reglum um útivistartíma og koma í veg fyrir hópamyndanir.
- Blaðamannafundur – 18 ára ábyrgð Fjallað var um tækifærin sem sumarið bíður upp á, jákvæð sem neikvæð. Jákvæður vinkill: miklar samverustundir tengjast lítilli neyslu og öfugt. Neikvæður vinkill: afleiðingar neyslu, t.d nauðganir, afbrot, slys o.fl.
Markmiðið var að vekja foreldra til umhugsunar um þá ábyrgð sem þeir bera á börnum sínum. Lögð var áhersla á jákvæð áhrif þess fyrir unglinga að verja tíma með fjölskyldu sinni en tengsl eru milli mikilla samverustunda og lítillar neyslu.
Um leið var hrundið af stað auglýsingaherferð undir yfirskriftinni „18 ára ábyrgð“ . Auglýsingin hefur verið birt í ýmsum miðlum: utan á strætisvögnum, í dagblöðum og tímaritum. Einnig hafa veggspjöld verið send út um allt land og póstkort prentuð með myndunum. Auglýsingin hefur fengið mjög góða einkunn, jafnt meðal almennings (sbr. könnun Gallup) og fagaðila. - Verslunarmannahelgin Mikið er í húfi að skapa ekki vettvang sem stuðlar að neyslu barna og unglinga á áfengi og öðrum vímuefnum á útihátíðum, s.s. um verslunarmannahelgina. Enginn vafi leikur á að útisamkomur og skemmtanir um þessa helgi hafa margar hverjar ýtt undir áfengis- og vímuefnaneyslu ungmenna og þar með ýmis alvarleg vandamál sem af henni hljótast. Þarna verður að stemma á að ósi. Breyta þarf þeirri ímynd að áfengi og skemmtun hljóti að eiga samleið, einkum þegar kemur að ungmennum. Vímuefnaneysla ungmenna á ekki að eiga sér stað og þurfum við öll að standa saman til að koma í veg fyrir hana.
Auglýsingar hafa verið í sjónvarpi þar sem hvatt er til aukinna samverustunda fjölskyldunnar sem og að mörk áfengisneyslu miðist við 20 ár. Fólk í hópnum hefur skrifað greinar um þetta efni og sýslumönnum og dómsmálaráðherra var sent bréf þar sem hvatt var til skilvirks eftirlits með aldurstakmarki gesta á útihátíðum og þessir aðilar voru einnig hvattir til að sporna gegn neyslu ungmenna á áfengi og vímuefnum. - 17. júní og Menningarnótt Auglýsingar og greinaskrif þar sem minnt er á hættuna sem getur skapast þegar börn og unglingar eru eftirlitslaus á hátíðum sem þessum.
- Útivistarreglur Athygli foreldra er vakin á því hversu mikilvægt það er að fylgja reglum um útivistartíma. Þetta hefur verið gert með auglýsingum og greinaskrifum. Haustið 2003 verða tilbúnar nýjar segulmottur með lögbundunum útivistarreglum barna og mun ÁVVR hafa umsjón með dreifingu segulmottnanna. Tilgangurinn með því að vekja athygli á reglum um útivistartíma er fyrst og fremst sá að vernda börnin okkar. Rannsóknir hafa sýnt að eftirlitslaus börn eru líklegri en önnur börn til að byrja að reykja og prófa áfengi eða önnur vímuefni. Jafnframt er þeim hættara en öðrum til að verða fórnarlömb eða gerendur ofbeldisverka eða afbrota.
- Áramót Aðgerðir taka mið af því að hvetja til samvista fjölskyldunnar og leggja áherslu á ábyrgð foreldra á þessum tímamótum. Hingað til hafa verið send póstkort inn á heimili landsmanna með þessum skilaboðum (og hefur Íslandspóstur styrk hópinn með því að dreifa kortunum), birtar hafa verið auglýsingar með skilaboðum til foreldra og umfjöllun verið í fjölmiðlum.
Árangur starfsins
Árangurinn starfs sem þessa kemur að sjálfsögðu ekki í ljós samstundis. Þolinmæði skiptir máli þegar kemur að forvarnastarfi. Forvarnastarf er í raun fjárfesting til framtíðar. Þó má nefna að vinnan í tengslum við lok samræmdra prófa hefur skilað sýnilegum árangri; nú hvork sést né heyrist lengur um að 10. bekkingar fagni próflokum með fylleríssamkomum. En það er alls ekki þar með sagt að þeirri vinnu sé lokið – alls ekki má sofna á verðinum og skoða þarf vel hvort eitthvað í starfinu þurfi endurskoðunar eða umbóta við.
Það sem Saman–hópurinn leggur fyrst og fremst áherslu á eru skilaboð til uppalenda, það eru þeir, þegar allt kemur til alls, sem skipta mestu máli í forvarnastarfi. Hópurinn telur sig vera að setja vopnin í þeirra hendur með því að hvetja þá og upplýsa. Mikilvægast af öllu er að foreldrar gefi sér tíma með börnunum sínum, þekki þau mjög vel og séu vinir þeirra. Í forvörnum geta foreldrar nefnilega verið bestir.
Kynning á SAMAN-hópnum á norsku
Kynning á starfsemi SAMAN-hópsins á norsku, eftir Bergþóru Valsdóttur.
Fyrst flutt á 19. norrænu vímuvarnaráðstefnunni sem haldin var í Reykjavík um mánaðarmótin ágúst-september, 2003.
Texti.
Má bjóða þér í ferðalag? (... eða á blaðamannafund?)
Þriðjudaginn 6. júlí bauð Saman-hópurinn blaðamönnum og öðrum áhugasömum í stutt ferðalag með tveggja hæða strætó. Á meðan á ferðalaginu stóð voru kynntar niðurstöður könnunar sem Gallup gerði á viðhorfum foreldra til ýmissa þátta er varða uppeldi barna og unglinga og áfengis- og vímuefnanotkun. Árið 2003 gerði Rannsóknir og greining ehf, könnun á vímuefnaneyslu nemenda í 8. 9. og 10. bekk. Því gefst nú tækifæri til að bera saman viðhorf foreldra og það sem þeir vita um börn sín við það sem unglingarnir segjast gera.
Á grundvelli þessara upplýsinga hefur SAMAN-hópurinn staðið að gerð sjónvarpsauglýsinga “Setum okkur í spor hvers annars”, m.a. til að vekja athygli á þessu og að minna á mikilvægi trausts og virðingar milli foreldra og barna. Foreldrar hafa sýnt að með samtakamætti sínum eru þeir bestir í forvörnum. Forvarnarsjóður, Kópavogsbær, Pokasjóður, Reykjavíkurborg og Skjár 1 hafa stutt við gerð auglýsinganna og birtingu þeirra.
Auglýsingar SAMAN
Eftirfarandi texta má finna í auglýsingum SAMAN-hópsins.
Foreldrar
Stöndum saman
Styðjum börnin okkar í því að afþakka áfengi og önnur vímuefni.
Foreldrar
Elskum börnin okkar
Veist þú hvað barnð þitt ætlar að gera um helgina?
Foreldrar
Elskum börnin okkar
Veist þú hvað barnð þitt ætlar að gera um verslunarmannahelgina?
Foreldrar
Sýnum ábyrgð
Áfengi má ekki selja, veita eða afhenda ungmennum undir 20 ára aldri.
Foreldrar
Sýnum ábyrgð
Reglur um útivistartíma barna og ungmenna eru í fullu gildi – líka á sumrin.
Foreldrar
Stöndum saman
Leyfum ekki eftirlitslaus partý.
Foreldrar
Elskum börnin okkar
Gleðjumst með börnunum okkar í allt sumar.
Foreldrar
Stöndum saman
Leyfum ekki eftirlitslaus ferðalög.
Foreldrar
Elskum börnin okkar
Veist þú hvar barnið þitt er í kvöld?
Foreldrar
Elskum börnin okkar
Veist þú hvar barnið þitt er núna?

Táknmynd SAMAN-hópsins
Tákn SAMAN-hópsins:
Snemma árs 2003 var Björgvin Ólafsson, grafískur hönnuður (www.islandia.is/bo/portfolio), fenginn til að hanna merki fyrir hópinn. Í samstarfi hópsins og í samstarfi við aðra sem að forvörnum starfa hefur hjartað gjarnan komið við sögu. Ákveðið var að hjartað skyldi áfram vera sterkur þáttur í ímynd hópsins, enda væntumþykja rauður þráður í starfinu. Tákn SAMAN þykir því endurspegla vel það starf sem hópurinn stendur fyrir.

Myndefni SAMAN

18 ára ábyrgð: barn
18 ára ábyrgð: unglingur
Fjölskyldan saman á tímamótum
Útivistareglur
Ferðumst saman
Borðum saman
Horfum saman
Verum saman