Sími : 5 800 900

Fyrri starfsemi

Ársskýrsla Árvekni 1999 - 22.3.2004

Árvekni, táknmyndRíkisstjórn Íslands samþykkti þann 8. október 1997 tillögu Ingibjargar Pálmadóttur, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, um þriggja ára átaksverkefni til fækkunar slysa á börnum og unglingum. Aðdraganda þessa verkefnis má rekja til samvinnu Þórhildar Líndal, umboðsmanns barna, og Herdísar L. Storgaard, barnaslysavarnafulltrúa Slysavarnafélags Íslands. Í samvinnu við lækna á barnadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur voru árið 1997 þróaðar hugmyndir umboðsmanns um sérstakt átak í slysavörnum barna og unglinga. Tillögur um slíkt átaksverkefni voru í júlí 1997 kynntar heilbrigðismálaráðherra. Eftir samþykkt ríkisstjórnar var verkefnisstjórn skipuð í apríl 1998 og hófst undirbúningur og skipulagning starfsins í framhaldi af því. Verkefnisstjórn er skipuð fulltrúum sex ráðuneyta og einum fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Síðla árs 1998 var Herdís L. Storgaard ráðin framkvæmdastjóri verkefnisins og hóf hún störf 1. desember það ár. Talið var rétt að finna verkefninu sérstakt nafn, m.a. til að auðvelda kynningu þess, og varð nafnið Árvekni fyrir valinu.

Lesa meira

 

Um upphaf og hlutverk Árvekni - 22.3.2004

Ríkisstjórn Íslands samþykkti þann 8. október 1997 tillögu Ingibjargar Pálmadóttur, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, um þriggja ára átaksverkefni til fækkunar slysa á börnum og unglingum. Lesa meira
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica