Sími : 5 800 900
Fyrri starfsemi

Áfengis- og vímuvarnaráð

28.5.2004

Hér má finna upplýsingar um fyrri starfsemi Áfengis- og vímuvarnaráðs

Upplýsingar um ráðið

Áfengis- og vímuvarnaráð var stofnað með lögum um Áfengis-
og vímuvarnaráð nr. 76/1998
í samræmi við aðgerðaáætlun
ríkisstjórnarinnar í fíkniefna-, áfengis- og tóbaksvörnum sem
samþykkt var 3. desember 1996.
Við gildistöku laga um Lýðheilsustöð, nr. 18 2003, þann 1. júlí 2003 féllu fyrri lög um ráðið úr gildi.

Eitt af hlutverkum ráðsins er að gera tillögu til heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra um úthlutun styrkja úr Forvarnasjóði
Áfengis- og vímuvarnaráðs.

Stefna ráðsins

Á fyrsta starfsári Áfengis- og vímuvarnaráðs, 1999, var stefna þess mörkuð. Til að meta hvar pottur væri brotinn í vímuvörnum, hvað væri vel gert og hvað þyrfti að gera var farið í þarfagreiningu með 5 hópa sem allir starfa að vímuvörnum. Niðurstöður þarfagreiningarinnar og stefnan eru síðan lögð til grundvallar þegar framkvæmdaáætlanir ráðsins eru gerðar.

Framkvæmdaáætlanir Áfengis- og vímuvarnaráðs

Framkvæmdaáætlun er gerð fyrir hvert starfsár Áfengis- og vímuvarnaráðs. Í áætlununum kemur meðal annars fram hvaða verkefni og rannsóknir verði framkvæmdar á því ári sem um ræðir.

Ársskýrslur Áfengis- og vímuvarnaráðs

Í ársskýrslum Áfengis- og vímuvarnaráðs er að finna upplýsingar um stefnu ráðsins, helstu áherslur í starfi þess, upplýsingar um fundi, ráðstefnur og skiptingu fjármuna. Einnig er að finna upplýsingar um þau verkefni sem hlutu styrki úr Forvarnasjóði árið á undan og framkvæmdaáætlun fyrir komandi ár.

Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica