Stefna
Stefna Lýðheilsustöðvar
Lýðheilsustöð tók til starfa 1. júlí 2003 samkvæmt lögum nr. 18/2003 og heyrir starfsemi hennar undir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
Lýðheilsa er hugtak yfir almennt heilsufar þjóðar eða þjóðfélagshóps. Lýðheilsustarf miðar að því að viðhalda og efla heilbrigði fólks, með forvörnum og samfélagslegri ábyrgð á heilbrigði. Starfið byggist á samstarfi ólíkra fræðigreina og tekur m.a. til félags-, umhverfis- og efnahagsmála.
Stefna og aðgerðaáætlun Lýðheilsustöðvar.




