Sími : 5 800 900
Lög

Lög um Lýðheilsustöð

29.3.2004

Lög um Lýðheilsustöð voru samþykkt á Alþingi 15. mars 2003.

Þingskjal 1445, 128. löggjafarþing 421. mál: Lýðheilsustöð.

Lög nr. 18 26. mars 2003.

Lög um Lýðheilsustöð.

1. gr.

Markmið.

    Markmið laga þessara er að efla lýðheilsu. Með eflingu lýðheilsu er átt við

aðgerðir sem ætlað er að viðhalda og bæta heilbrigði þjóðarinnar eða tilgreindra

hópa í þjóðfélaginu með skipulegum og viðurkenndum aðferðum.

 

 

2. gr.

Yfirstjórn.

     Starfrækja skal Lýðheilsustöð til að vinna að markmiðum laga þessara. Hún

skal vera undir yfirstjórn heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Ráðherra

skipar forstjóra Lýðheilsustöðvar til fimm ára í senn. Forstjóri ber ábyrgð á

rekstri og fjárreiðum stöðvarinnar og ræður aðra starfsmenn hennar.

 

 

3. gr.

Hlutverk.

     Hlutverk stöðvarinnar er að efla lýðheilsustarf og samræma það, annast

fræðslu til almennings um heilbrigði og heilsueflingu í samstarfi og samvinnu

við landlækni og aðra eftir því sem við á og styðja starfsemi stofnana og

frjálsra félagasamtaka til eflingar lýðheilsu. Lýðheilsustöð skal vera

stjórnvöldum til ráðgjafar um stefnumótun á sviði lýðheilsu. Forgangsröðun

verkefna skal vera í samræmi við heilbrigðisáætlun. Stöðin fylgist með árangri

af lýðheilsustarfi og stuðlar að rannsóknum á sviði lýðheilsu í samvinnu við

landlækni og mennta- og rannsóknastofnanir.

     Helstu verkefni Lýðheilsustöðvar eru:

  a.

  að efla lýðheilsustarf í samvinnu við aðra sem að þeim málum starfa,

  b.

  að annast áfengis- og vímuvarnir, manneldi, slysavarnir, tóbaksvarnir og önnur

  forvarna- og heilsueflingarverkefni á vegum ríkisins,

  c.

  að fylgjast með og koma á framfæri nýrri þekkingu og reynslu sem að gagni

  mætti koma í lýðheilsustarfi,

  d.

  að meta reglulega árangur af lýðheilsustarfi og bera hann saman við sett

  markmið,

  e.

  að efla þekkingu og færni þeirra sem starfa að eflingu lýðheilsu,

  f.

  að miðla upplýsingum og fræðslu til landsmanna og einstakra hópa í

  samfélaginu, eftir því sem við á, í samvinnu við landlækni og aðra,

  g.

  að stuðla að eflingu kennslu og rannsókna á sviði lýðheilsu og samstarfi við

  háskóla og aðrar menntastofnanir,

  h.

  að beina tillögum til stjórnvalda um aðgerðir til að efla lýðheilsu og

  forgangsröðun verkefna.

     Ráðherra er heimilt að skilgreina verkefni stöðvarinnar á sviði lýðheilsu

nánar með reglugerð.

     Lýðheilsustöð er heimilt, í samráði við ráðherra, að semja við aðra um að

sinna starfsemi sem stöðinni er falið að annast samkvæmt lögum eða reglugerðum.

 

 

4. gr.

Landsnefnd um lýðheilsu.

     Landsnefnd um lýðheilsu er ráðgjafarnefnd Lýðheilsustöðvar um fagleg

málefni. Nefndin er skipuð af ráðherra til fjögurra ára í senn. Formenn

sérfræðiráða skv. 5. gr. og landlæknir eða fulltrúi tilnefndur af honum skulu

eiga sæti í nefndinni. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skipar formann án

tilnefningar. Ráðherra skal kveða nánar á um skipan og hlutverk nefndarinnar í

reglugerð, m.a. um tilnefningu félaga og stofnana sem vinna að lýðheilsu.

 

 

5. gr.

Sérfræðiráð.

     Áfengis- og vímuvarnaráð, manneldisráð, slysavarnaráð og tóbaksvarnaráð

skulu starfa innan Lýðheilsustöðvar og gegna hlutverki sérfræðiráða

Lýðheilsustöðvar. Heimilt er, með reglugerð, að fela þeim víðtækari verkefni en

kveðið er á um í 6.–9. gr.

     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skal setja reglugerð um skipan og

hlutverk annarra sérfræðiráða. Þau skulu skipuð sérfræðingum og fulltrúum

stofnana og félaga sem starfa á viðkomandi sviði. Landlæknir skal tilnefna einn

fulltrúa í hvert sérfræðiráð.

     Sérfræðiráð skv. 1. og 2. mgr. skulu vera Lýðheilsustöð og öðrum sem starfa

að forvörnum til ráðgjafar hvert á sínu sviði.

 

 

6. gr.

Áfengis- og vímuvarnaráð.

     Hlutverk áfengis- og vímuvarnaráðs er að efla og styrkja áfengis- og

vímuvarnir, sérstaklega meðal barna og ungmenna, og hafa eftirlit með að ákvæðum

laga og reglugerða um áfengis- og vímuvarnir sé framfylgt.

     Ráðið skal stuðla að samvinnu og samræmingu milli þeirra sem starfa að

áfengis- og vímuvörnum, svo sem heilsugæslu og annarra heilbrigðisstofnana,

sveitarstjórna, löggæslu, menntakerfis, refsivörslukerfis og félagasamtaka.

     Lýðheilsustöð skal ráðstafa fé úr Forvarnasjóði skv. 7. gr. laga nr.

96/1995, um gjald af áfengi og tóbaki, til verkefna á sviði áfengis- og

vímuvarna í samráði við ráðherra að fengnum tillögum áfengis- og vímuvarnaráðs.

     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skal setja reglugerð þar sem kveðið

er á um skipan ráðsins og starfsemi þess, m.a. ráðstöfun fjár úr Forvarnasjóði.

 

 

7. gr.

Manneldisráð.

     Hlutverk manneldisráðs er að stuðla að heilsusamlegu mataræði þjóðarinnar í

samræmi við manneldismarkmið. Ráðið skal vinna að samræmingu rannsókna og

fræðslu á sviði manneldisfræði í samráði við skóla, heilsugæslu og stofnanir á

sviði matvælaeftirlits.

     Ráðherra skal setja reglugerð þar sem kveðið er á um skipan ráðsins og

starfsemi þess.

 

 

8. gr.

Slysavarnaráð.

     Hlutverk slysavarnaráðs er að stuðla að fækkun slysa.

     Ráðið skal sjá til þess að slys séu skráð með samræmdum hætti. Jafnframt

skal ráðið hlutast til um úrvinnslu skráðra upplýsinga og birtingu þeirra. Ráðið

mótar reglur um framkvæmd skráningar og aðgang að upplýsingum úr skránni.

     Samræmd slysaskrá skal varðveitt hjá landlækni.

     Ráðherra skal setja reglugerð þar sem kveðið er á um skipan ráðsins og

starfsemi þess.

 

 

9. gr.

Tóbaksvarnaráð.

     Hlutverk tóbaksvarnaráðs er að stuðla að tóbaksvörnum.

     Fjármálaráðuneytið skal hafa samráð við tóbaksvarnaráð um stefnumörkun

varðandi innflutning og verðlagningu tóbaks.

     Leita skal álits ráðsins á öllum reglugerðum sem snerta tóbaksvarnir og

tóbakssölu.

     Lýðheilsustöð skal fá 0,9% af brúttósölu tóbaks til ráðstöfunar til

tóbaksvarnastarfs og skal fénu ráðstafað í samráði við ráðherra að fengnum

tillögum tóbaksvarnaráðs.

     Ráðherra skal setja nánari ákvæði um skipan og hlutverk tóbaksvarnaráðs í

reglugerð.

 

 

10. gr.

Gildistaka.

     Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2003.

     Við gildistöku laga þessara falla eftirtalin lög og lagaákvæði úr gildi:

Lög um slysavarnaráð, nr. 33/1994, lög um manneldisráð, nr. 45/1978, lög um

áfengis- og vímuvarnaráð, nr. 76/1998, og 5. gr. laga um tóbaksvarnir, nr.

6/2002.

 

 

Samþykkt á Alþingi 15. mars 2003.

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica