Sími : 5 800 900
Fyrir Kennara

Vinir Zippýs - Efni ætlað kennurum

30.5.2010

Deildu með öðrum

Kennarar, sem hlotið hafa réttindi til að kenna námsefnið, hafa öll kennslugögn sem til þarf en hér er ýmislegt efni sem kynnir námsefnið Vinir Zippýs og annað efni sem kennarar geta nýtt sér.
Tenglarnir í yfirlitinu eru flýtileið í viðkomandi efni.

Námsefnið byggist á sex afmökuðum þáttum sem hver hefur eitt yfirmarkmið. Hver námsþáttur hefur efni í 3-7 kennslustundir eða samtals 24 kennslustundir sem kenndar eru á jafnmörgum vikum. Dæmi: Fyrsti námsþátturinn er um tilfinningar og kennslustundirnar fjórar í tengslum við hann taka á: vanlíðan – vellíðan, reiði eða pirringi, öfund og kvíða.

Sérstök saga er tengd hverjum þætti (sjá sögu 1). Zippý er gælufluga og vinirnir eru hópur af ungum börnum. Í upphafi hverrar kennslustundar les kennarinn hluta sögu námsþáttarins og svo taka börnin virkan þátt í umræðum. Í sögunum standa söguhetjurnar frammi fyrir ýmsum aðstæðum sem mörg ung börn þekkja vel og snerta m.a.: vináttu, samskipti, einmanaleika, einelti, að takast á við breytingar, s.s. skilnað foreldra, missi og sorg. Sögurnar eru myndskreyttar með björtum og líflegum myndum.

Hverri sögu fylgja mismunandi verkefni. Með námsefninu er börnunum kennt að takast á við erfiðleika sem upp kunna að koma í daglegu lífi þeirra, að greina og tala um tilfinningar sínar og að kanna leiðir til að takast á við og leysa tilfinningaleg vandamál. Það kennir börnum ennfremur að aðstoða aðra sem líður illa. Vinir Zippýs segir börnunum ekki hvað þau eiga að gera, þ.e. að ein lausn á vandanum sé betri en önnur, heldur hvetur námsefnið börnin til sjálfstæðrar hugsunar við úrlausn vandamála. Markmiðið er því að efla andlega og tilfinningalega heilsu allra barnanna frekar en að leysa eingöngu vandamál fárra.

Mat á kennslustundum

Kennarar sem kenna námsefnið vinir Zippýs eru beðnir um að meta kennslustundirnar og þeir senda matið rafrænt til umsjónaraðila námsefnisins.

Kynningarbæklingur um námsefnið

Hugmyndafræði námsefnisins

Að geta bjargað sér

Sýnishorn úr námsþætti 1 um tilfinningar:
Saga 1, myndaspjöld, textaspjöld

Mat á árangri af notkun kennsluefnisins Vinir Zippýs.
Þarna er hægt að nálgast greinar á ensku um kannanir á árangri af notkun kennsluefnisins Vinir Zippýs.

NÁMSÞÆTTIRNIR

Mat á námsþáttum verkefnisins

Smellið á viðeigandi mynd


Lýsing og markmið námsþáttanna í PDF

fyrsti námsþáttur - Tilfinningar

1. námsþáttur: Tilfinningar

Að börnin verði færari um að þekkja neikvæðar tilfinningar og finna færar leiðir til þess að takast á við slíkar tilfinningar.

annar námsþáttur - Tjáning og boðskipti

2. námsþáttur: Tjáning og Boðskipti

Að börnin öðlist meiri leikni í að tjá tilfinningar sínar.

þriðji námsþáttur - Vináttutengsl

3. námsþáttur: Að mynda vináttutengsl og slíta þeim

Að stuðla að aukinni hæfni barna til að mynda vináttutengsl og að ráða við höfnun og einmanaleik.

fjórði námsþáttur_- Ágreiningsmál

4. námsþáttur: Að leysa ágreiningsmál

Að bæta hæfni barna til að leysa ágreiningsmál.

fimmti námsþáttur - Breytingar og missir

5. námsþáttur: Að takast á við breytingar og missi

Að gera börnin færari um að takast á við breytingar og missi

sjötti námsþáttur - Við spjörum okkur

6. námsþáttur: Við spjörum okkur

Að efla færni barna við að nota margvíslegar aðferðir til þess að ráða fram úr ýmsum vandamálum sem þau standa frammi fyrir.

Kynningarmynd um Vini Zippýs verkefnið

Myndbandið er 14:55 mín. að lengd og 55 MB að stærð. Smelltu á myndina til að sjá það.

Vinir Zippýs - kynningarmyndband

Hjálpargögn Viðurkenning til nemenda. Smelltu á myndina til að fá upp skjalið.

Viðurkenningarskjal (PDF)

Viðurkenningarskjal 2. útg  (JPG - verra að prenta beint út af vef, betra að vista á tölvunni fyrst)

Góðar hugmyndir - uppfært í júlí 2008

(Myndir úr skólum

Trölladeig

Zippý-merkimiðar/ nafnspjöld (70 KB)

Panta íslenska foreldra-bæklinginn „Vinir Zippýs“

Greinar og annað efni

Grein í Skólavörðunni

Bæklingar um efni tengt geðrækt

Vinir Zippýs - útbreiðsla í skólum

Rannsóknir: Mat á árangri af notkun kennsluefnisins (erlent).

Deildu með öðrum

Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica