Sími : 5 800 900
Fyrir foreldra

Fyrir foreldra - um námsefnið Vinir Zippýs

Deildu með öðrum Dreifðu um vefinn

Vinir_Zippys_myndefni

Grundvallarhugmyndafræðin á bak við Vinir Zippýs er einföld: Ef hægt er að kenna ungum börnum að takast á við erfiðleika þá ættu þau að vera betur í stakk búin að takast á við vandamál og erfiðleika sem þau standa frammi fyrir á unglingsárunum og síðar á lífsleiðinni. Námsefnið er byggt í kringum sögur sem nefndar eru „Vinir Zippýs“.

z1Zippý er teiknimyndapersóna, nánar tiltekið skordýr, og vinir hans er hópur af ungum börnum. Í sögunum standa þau frammi fyrir ýmsum aðstæðum sem mörg ung börn þekkja vel og snerta m.a.: vináttu, samskipti, einmannaleika, einelti, að takast á við breytingar s.s. skilnað foreldra, missi og sorg.

Sögurnar eru myndskreyttar með björtum og líflegum myndum. Hverri sögu fylgja mismunandi verkefni. Með námsefninu er börnunum kennt að takast á við erfiðleika sem upp kunna að koma í daglegu lífi þeirra, að greina og tala um tilfinningar sínar og að kanna leiðir til að takast á við og leysa tilfinningaleg vandamál. Það kennir börnum ennfremur að aðstoða aðra sem líður illa. Markmiðið er því að efla andlega og tilfinningalega heilsu allra barnanna frekar en að leysa eingöngu vandamál fárra.

Foreldrabæklingur

Foreldrar barna sem fara í gegnum námsefnið Vinir Zippýs fá sérstakan kynningarbækling í hendur sem kennarinn dreifir til þeirra. Bæklingurinn er eingöngu prentaður á íslensku en einnig er hægt að nálgast hann í PDF útgáfu á fleiri tungumálum á síðunni „Foreign languages“ í valstikunni vinstra megin.

Íslenski bæklingurinn í PDF - útgáfu.

Panta íslenska bæklinginn

foreldra_baeklingur_isl

Vinir Zippýs - kynningarmyndband. Smelltu á myndina til að horfa á það.

Myndbandið er 14:55 mín. að lengd og 55 MB að stærð. Smellið á myndina til að horfa á það.


Leiðbeiningar fyrir foreldra  

Hvernig þið getið aðstoðað börnin ykkar svo þau hafi sem mest gagn af námsefninu

Námsefnið Vinir Zippýs kennir ungum börnum að takast á við erfiðleika hversdagsins. Kennarar, sem hafa hlotið sérstaka þjálfun, kenna námsefnið í skólum, en foreldrar geta gert margt til þess að styðja við bakið á börnunum og aukið áhrif námsefnisins og kennslunnar.

Ábendingar

  • Haldið fjölskyldufundi um mál sem þarf að ráða fram úr. Ef erfið tilfinningamál koma upp, t.d. alvarlegt rifrildi eða dauðsfall í fjölskyldunni, er fjölskyldufundur góð leið.
  • Sum verkefnin og æfingarnar, sem hér eru kynnt, er upplagt að fást við á ferðalögum, t.d. í bíl.
  • Ræðið um tilfinningar. Spyrjið barnið um tilfinningar persóna í sögum eða í sjónvarpi. Segið barninu hvernig ykkur líður sjálfum. Spyrjið barnið hvernig því líður – og hvers vegna.
  • Þegar breytingar eru í aðsigi – nýtt heimili eða skóli, eða nýtt systkini í vændum – skuluð þið tala við barnið um breytingarnar sem það heldur að verði á högum þeirra.

Námskeiðinu er skipt í sex námsþætti og er hér að finna ráð og verkefni sem tengjast hverjum þætti fyrir sig.

Lítið á eftirfarandi:

Notið þær hugmyndir sem virðast eiga best við ykkur og ykkar barn.

Í námsefninu Vinir Zippýs eru börn hvött til þess að velta fyrir sér mörgum ólíkum leiðum til þess að fást við erfiðar aðstæður og tilfinningar. Einu reglurnar eru þær að lausnin, sem barnið velur, verður annaðhvort að bæta aðstæðurnar eða líðan barnsins og hún má ekki skaða aðra.

Námsefnið hefur verið þýtt yfir á albönsku, pólsku, rússnesku, serbnesku og víetnömsku, og það má finna á síðunni „Foreign languages“ í valstikunni vinstra megin á þessari síðu.

 Erfiðir tímar

Lífið getur stundum reynst erfitt og börn átt í erfiðleikum með að höndla vissar aðstæður sem þau standa frammi fyrir. Það sama getur átt við um fjölskyldur og kennara barnanna. Foreldrum getur reynst mjög erfitt að styðja barnið sitt þegar þeim líður illa eru yfirkomnir af sorg daprir eða reiðir t.d. við dauðsfall náins ættingja eða vinar eða standa í hjónaskilnaði.

Hér fyrir neðan eru upplýsingar og úrræði sem studdar hafa verið með rannsóknum og geta reynst foreldrum gagnlegar í erfiðleikum sem stundum er erfitt að höndla.

Missir og sorg

Einelti

Skilnaður

Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica