Sími : 5 800 900
Fréttir

Um verkefnið Vinir Zippýs

1.1.2010

 

Vinir Zippýs eða „Zippy´s Friends“ verkefnið er alþjóðlegt forvarnarverkefni á sviði geðheilsu fyrir börn sem Lýðheilsu-stöð hleypti af stokkunum árið 2005. Það eru bresku góðgerðarsamtökin „Partnership for Children“ sem sjá um útbreiðslu og samningu námsefnisins sem nú er kennt í 19 löndum, að Íslandi meðtöldu. Um er að ræða námsefni ætlað börnum á yngsta stigi grunnskóla sem notað hefur verið með góðum árangri víða um heim. Umsjón með verkefninu hefur verkefnisstjóri Geðræktar hjá Lýðheilsustöð, Guðrún Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur MS, og veitir hún allar nánari upplýsingar.

Hugmyndafræði Vinir Zippýs

Grundvallarhugmyndafræðin á bak við Vinir Zippýs er einföld:
Ef hægt er að kenna ungum börnum að takast á við erfiðleika þá ættu þau að vera betur í stakk búin að takast á við vandamál og erfiðleika sem þau standa frammi fyrir á unglingsárunum og síðar á lífsleiðinni. Börnunum er kennt að ráða fram úr erfiðleikum sem þau mæta í daglegu lífi, að bera kennsl á og tala um tilfinningar sem þau bera í brjósti og kanna færar leiðir til að kljást við tilfinningar sínar. Námsefnið er ekki síður samið með það fyrir augum að hvetja börn til þess að aðstoða aðra sem eiga við vanda að stríða.

Þannig er námsefnið byggt á hugmyndum um fyrirbyggjandi aðgerðir eða forvarnir. Innan geðheilbrigðisþjónustunnar er fyrst og fremst um tvær nálganir að ræða: annars vegar að beina kröftunum að vandamálum og erfiðleikum og hins vegar að beina þeim að því að byggja upp færni við að takast á við erfið mál sem mæta einstaklingum. Námsefnið Vinir Zippýs flokkast undir síðari nálgunina. Í námsefninu er sjónum því ekki beint að börnum sem eiga við sérstök vandamál eða erfiðleika stríða. Námsefninu er þvert á móti ætlað að stuðla að bættri tilfinninga-legri líðan allra barna.

Að hjálpa öðrum, að bera virðingu fyrir öðrum, að geta sett sig í annarra spor og að geta starfað með öðrum eru allt lykilatriði í námsefninu Vinir Zippýs.

Megináherslur / curriculum

Smelltu hér til að sjá megináherslur verkefnisins (PDF-skjal)

Kynningarbæklingur um námsefnið

Smelltu hér til að lesa bæklinginn (PDF-skjal)

Foreldrar

Mikil áhersla er lögð á aðkomu foreldra að kennslu námsefnisins. Foreldrum er boðið á kynningarfund áður en byrjað er að kenna námsefnið og á slíkum fundi fá þeir afhentan kynningarbækling um námsefnið. Þá hafa einnig verið útbúnar leiðbeiningar fyrir foreldra um hvernig þeir geti aðstoðað barnið sitt svo að það hafi sem mest gagn af námsefninu Vinir Zippýs. Á síðunni Fyrir foreldra er hægt að nálgast upplýsingar um námsefnið.

Kennsla

Vinir Zippýs er kennt í grunnskólum en hefur einnig verið kennt í leikskólum. Kennarar sem kenna námsefnið þurfa allir að sækja námskeið. Kennarar, sem fengið hafa þjálfun, kenna námsefnið eina kennslustund á viku í samtals 24 vikur. Nánar um efnið á síðunni Fyrir kennara.

Rannsóknir hafa sýnt að mjög góður árangur hlýst af þessu námsefni í ólíku menningarumhverfi. Í ljós kom að börnin sem höfðu farið í gegnum námsefnið sýndu greinilega framför í því að takast á við vandamál á jákvæðan hátt („coping abilities“) samanborið við börn sem ekki fóru í gegnum það.

Námsefnið verður árangursmetið á Íslandi með sömu aðferðum og hafa verið notaðar þannig að um alþjóðlegan samanburð geti verið að ræða.

Sagan

Vinir Zippýs verkefnið var fyrst samið og gefið út af „Befrienders International“ undir nafninu „Reaching Young Europe“ Í upphafi var fyrst og fremst stefnt að því að kenna börnum ýmsa færni og nota við það nýjar aðferðir sem ekki höfðu verið notaðar áður.

Námsefnið var í upphafi þróað og forprófað í Danmörku á árunum 1998 til 1999. Frekari forprófun og innleiðing fór svo fram í Danmörku og Litháen árin 2000-2001. Árið 2002 tók „Partnership for Children“ við verkefninu sem fékk þá nafnið „Zippy´s Friends“.

Á Íslandi var settur á stofn stýrihópur um verkefnið í byrjun árs 2005. Í fyrstu var gerður samningur um þróunarverkefni til tveggja ára, námsefnið þýtt á íslensku og þýðingin forprófuð í leikskólanum Maríuborg, Ingunnarskóla og grunnskólanum í Norðlingaholti skólaárið 2005-2006. Nú hefur samningurinn verið framlengdur til fimm ára og skólaárið 2006-2007 var námsefnið kennt í 11 grunnskólum á Íslandi, í 29 skólum 2007-2008 og stefnir í að 40-50 grunnskólar verði með námsefnið á dagskrá skólaárið 2008-2009.
Sjá útbreiðslu námsefnisins.

Í mars 2008 sóttu 20 starfsmenn BUGL (Barna- og unglinga-geðdeild LSH) námskeið og yngstu skjólstæðingar deildarinnar njóta nú kennslu í námsefninu til að efla tilfinningaþroska þeirra og félagsfærni.
Umsjón með kennslunni hafa hjúkrunarfræðingar BUGL.

 

Deildu með öðrum

Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica