Sími : 5 800 900
Fréttir

Vinir Zippýs í fleiri löndum

28.7.2010

Vinir Zippýs nær víðari útbreiðslu í Suður-Ameríku, og námsefnið verður von bráðar kennt í Argentínu, Mexíkó og Panama.
Nánar má lesa um það í yfirliti Partnership for Children fyrir 2009-2010 (PDF-skjal á ensku).

Partnership for Children, regnhlífasamtök Vina Zippýs, hefur gefið út yfirlit síðasta skólaárs og má finna það á vef þeirra.
Yfirlit 2009-2010 (PDF-skjal, enska)

Einn af hápunktum síðasta árs var 10 ára kennsluafmæli verkefnisins í Litháen. Í hörðu árferði var það töluvert þrekvirki að fjármagna kostnaðinn við kennslu og námsefni, og náðist sá kostnaður niður í upphæð sem samsvarar 2,14 GBP (eða um 450 íslenskum krónum) á barn, sem er lægsta upphæð sem þekkst hefur hingað til.

Vinir Zippýs eru nú kenndir í 19 löndum um allan heim, og von bráðar bætast Argentína, Mexíkó og Panama í þann hóp. Yfir 300.000 börn hafa víðsvegar um heim hafa nú tekið þátt í verkefninu Vinir Zippýs, og fjöldi þeirra eykst með hverjum vetri sem líður.

Hér má finna foreldrabæklinginn á 23 tungumálum.



Deildu með öðrum

Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica