Geðrækt
Geðrækt er fræðslu- og forvarnarverkefni um geðheilsu og áhrifaþætti hennar.
Í aðgerðum Lýðheilsustöðvar er lögð áhersla á mikilvægi góðrar geðheilsu í almennu heilsufari og það sem fólk getur sjálft gert til að hafa jákvæð áhrif á geðheilsuna.
Geðrækt hófst sem sjálfstætt verkefni árið 2000 að tilstuðlan fyrrum notanda geðheilbrigðis-þjónustunnar. Markmið þess var að fræða fólk um geð-heilbrigði, forvarnir, eflingu geðheilbrigðis og draga úr fordómum. Haustið 2004 hlaut verkefnið viðurkenningu sem sérstaklega vel heppnað verkefni á sviði geðheilbrigðis og færðist sama ár formlega til Lýðheilsustöðvar.
Vinir Zippýs
Vinir Zippýs er alþjóðlegt lífsleikninámsefni sem er ætlað að efla geðheilbrigði 6-7 ára barna og hefur verið notað með góðum árangri víða um heim. Verkefnið er nú þegar kennt er í mörgum skólum vítt og breitt um landið.
Efni um geðrækt
