Sími : 5 800 900
Allt hefur áhrif -einkum við sjálf

Allt hefur áhrif, einkum við sjálf

Allt hefur áhrif, einkum við sjálf! eru einkunnarorð þróunarverkefnis Lýðheilsustöðvar sem unnið er í samvinnu við sveitarfélög í landinu. Verkefnið hefur það markmið að bæta lífshætti barna og fjölskyldna þeirra með áherslu á hreyfingu og góða næringu.

Jórlaug notaVerkefnisstjóri: Jórlaug Heimisdóttir

Markmið

Leitast verður við að auka þekkingu fólks á þeim þáttum sem þarna hafa áhrif, auk þess að stuðla að bættri aðstöðu til almennrar heilsueflingar. Markmiðið er að sem flestir landsmenn þekki verkefnið, geri sér grein fyrir mikilvægi þess og eigi hlutdeild í framkvæmdinni.

Lýðheilsustöð kemur að verkefninu með ráðgjöf og fræðslu og metur árangur verkefnisins á hverjum stað og margir starfsmenn Lýðheilsustöðvar koma að vinnunni við verkefnið.

Hvert sveitarfélag, sem tekur þátt í verkefninu, mótar eigin stefnu og aðgerðaáætlun um aukna hreyfingu og bætta næringu barna í sinni heimabyggð, í samræmi við eigin þarfir og aðstæður. Því má gera ráð fyrir að verkefnin verði ólík, bæði hvað varðar nálgun og umfang. Sveitarfélögin leiða verkefnið en Lýðheilsustöð er í formlegu samstarfi við grunnskóla og leikskóla sem og heilsugæsluna, einkum þá sem sinna skólaheilsugæslu.

Sveitarfélög sem taka þátt

Í maí 2004 sendi Lýðheilsustöð bréf til allra sveitarfélaga í landinu til að kanna áhuga þeirra á að taka þátt í þróunarverkefni um bætt mataræði og aukna hreyfingu barna og ungmenna. Bréfi þessu var fylgt eftir með kynningarbæklingi sem í byrjun desember 2004 var sendur út til allra sveitarstjórna, skóla/leikskólastjóra og hjúkrunar-/lækningarforstjóra í landinu. Nú eru 25 sveitarfélög þátttakendur í þróunarverkefninu. Bent er á að verkefnið gagnast öllum sveitarfélögum jafnvel þótt þau taki ekki beinan þátt í því.

Útgefið efni:

Allt hefur áhrif bæklingur (í PDF formi).

Everything affects us - especially ourselves! (Booklet PDF file)

Fyrirlestrar fluttir um verkefnið

Verkefnið var kynnt á haustráðstefnu Miðstöðvar heilsuverndar barna 12. nóv. 2004. Skoða PDF.



Deildu með öðrum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica