Áfengis- og vímuvarnir
Starfsemi Lýðheilsustöðvar á sviði áfengis- og vímuvarna skiptist í öflun og miðlun upplýsinga, heilsueflingarverkefni, rannsóknir og styrkveitingar úr Forvarnasjóði.
Lýðheilsustöð er miðstöð vímuvarna í landinu. Stöðin vinnur fræðsluefni um áfengi og önnur vímuefni fyrir almenning og stuðlar að samvinnu og samræmingu starfa á meðal allra þeirra sem vinna að vímuvörnum.
Á vegum Lýðheilsustöðvar eru unnar kannanir á áfengis- og vímuefnaneyslu landsmanna. Einnig er safnað öðrum tölfræðilegum upplýsingum sem gefa
vísbendingar um stöðu þeirra mála í landinu og skaðvænlegar afleiðingar þeirrar neyslu.
Lýðheilsustöð á í samvinnu við erlendar og innlendar rannsóknarstofnanir, háskóla og heilbrigðisstofnanir um rannsóknir á sviði áfengis- og vímuvarna.
Verkefnisstjóri: Rafn M. Jónsson
Áfengis- og vímuvarnaráð
Öll starfsemi sem áður féll undir Áfengis- og vímuvarnaráð hefur flust til Lýðheilsustöðvar. Ráðið starfar áfram en nú sem fagráð og ráðgjafi fyrir þennan málaflokk hjá Lýðheilsustöð.
Fyrri starfssemi Áfengis og vímuvarnaráðs
Efni um áfengis- og vímuvarnir
Hnapparnir til vinstri vísa beint á ýmislegt sem tengist áfengis- og vímuvörnum. Fliparnir fyrir ofan gera það einnig en vísa jafnframt á aðra málaflokka sem heyra undir Lýðheilsustöð.
