LÝÐHEILSUSTÖÐ
Lýðheilsustöð tók til starfa 1. júlí 2003, samkvæmt lögum nr. 18/2003. Lýðheilsustöð tilheyrir heilbrigðiskerfi landsins og fellur undir stjórn heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis.
Yfirlit
Með starfsemi sinni er Lýðheilsustöð ætlað að efla og samræma lýðheilsustarf í landinu, efla kennslu og
rannsóknir á sviði lýðheilsu, vinna að lýðheilsuverkefnum á eigin vegum og í samvinnu við aðra sem og að byggja upp þekkingasetur allra landsmanna, fagfólks jafnt sem almennings, á þessu sviði.
Lýðheilsustöð er stjórnvöldum til ráðgjafar um stefnumótun á sviði lýðheilsu, tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi og er í tengslum við aðra sem starfa á sviði lýðheilsu.
Lýðheilsa
Lýðheilsa er hugtak yfir almennt heilsufar þjóðar eða þjóðfélagshóps. Lýðheilsustarf miðar að því að viðhalda og efla heilbrigði fólks, með forvarnarstarfi og samfélagslegri ábyrgð á heilbrigði. Starfið byggir á samstarfi ólíkra fræðigreina og tekur m.a. til efnahagslegra og félagslegra áhrifaþátta.
Einkennismerki Lýðheilsustöðvar
Einkennismerki Lýðheilsustöðvar sýnir það persónu snúa sér í hring. Merkið á að tákna frelsi hvers og eins til að ná valdi á umhverfi sínu og þeim þáttum sem hafa áhrif á eigin heilbrigði.
Skipurit Lýðheilsustöðvar
.jpg)
Frá stofnun Lýðheilsustöðvar hafa áfengis- og vímuvarnaráð, manneldisráð, slysavarnaráð og tóbaksvarnaráð tilheyrt stöðinni en frá áramótum 2003/2004 bættust við Árvekni og tannverndarsjóður - og síðar verkefnin Geðrækt, Allt hefur áhrif - einkum við sjálf , hreyfing og skólafæðsla. Unnið er sams konar verkefnum og unnin voru vegum fyrri ráða og stofnana en einnig mörgum nýjum. Helsti ávinningurinn er að nú er á einum stað unnið sameiginlega að forvörnum á þessum sviðum.
Starfsfólk Lýðheilsustöðvar
Starfsfólk Lýðheilsustöðvar getur veitt nánari upplýsingar um málaflokka og starfsemi stöðvarinnar.
Forstjóri er Margrét Björnsdóttir, sviðsstjóri rannsóknasviðs er Stefán Hrafn Jónsson, sviðsstjóri samskipta- og fræðslusviðs er Bryndís Kristjánsdóttir og skrifstofustjóri er Jóhann Þór Halldórsson
| Gildi starfsmanna Lýðheilsustöðvar | Hagsmunaaðilar Lýðheilsustöðvar | |
|---|---|---|
![]() |
![]() |

Útgáfur sem kynna starfsemina



