Sími : 5 800 900
Starfsfólk

Starfsfólk

Heilsueflingar-Starfsfolok

Jafn mikilvægt og það er að nemendum líði vel í skólanum er að starfsfólki líði þar vel. Heilsuefling á vinnustöðum getur þar skilað góðum árangri. Ef vel er að staðið er líklegt að hún skili ávinningi fyrir bæði starfsfólk og nemendur og allt skólastarfið í heild sinni.

Með heilsueflingu starfsfólks stuðlar skólinn einnig að góðri ímynd sinni og að litið sé á hann sem eftirsóknarverðan vinnustað. Ávinningur starfsmanna getur m.a. verið færri slys og sjúkdómar, bætt almenn heilsa, vellíðan og starfsánægja, sem aftur er líklegt til að draga úr fjarvistum og veikindadögum. Starfsgeta hvers og eins eflist og getur jafnvel stuðlað að lengri starfsævi. Vinnuveitendur sem hlúa að heilsu starfsfólks hafa ekki aðeins jákvæð áhrif á starfsfólk og starfsumhverfið í heild, heldur geta áhrifin einnig náð til fjölskyldu starfsfólksins og samfélagsins í heild.

Deildu með öðrum


Hér á síðunni, verður aðgengilegt margskonar stuðningsefni varðandi heilsueflingu og vellíðan starfsfólks í heilsueflandi grunnskólum, auk nýjustu uppfærslu viðkomandi blaðsíðna í handbókinni fyrir heilsueflandi grunnskóla.



Verkfærakista - Starfsfólk

Reglulega er hér bætt við nýju efni og eru allar gagnlegar ábendingar vel þegnar.

Heilsuefling -StarfsfolkKafli handbókar heilsueflandi grunnskóla sem fjallar um starfsfólk grunnskóla (PDF-skjal, nóv 2010), með fyrirvara um áframhaldandi breytingar í ljósi reynslu.


Fleira:

Heilsuefling á vinnustöðum

Ráðleggingar um hreyfingu (PDF)

Reglugerð um gerð og búnað grunnskólahúsnæðis og skólalóða

Leiðbeiningar við gerð áhættumats



Deildu með öðrum




Þetta vefsvæði byggir á Eplica