Nemendur
Meginmarkmið heilsueflandi skóla er að stuðla að góðum skólabrag og hafa jákvæð áhrif á lífshætti, heilsu og almenna velferð nemenda.
Mikilvægt er að nemendur taki þátt í að móta heildarstefnu skólans og komi með sína sýn og áhersluatriði á það sem þeim finnst þurfa að huga að í skólanum og utan skóla. Þátttaka nemenda ýtir þar með undir þeirra eigin ábyrgð og að þeir hafi réttindi.
Hér á síðunni, verður aðgengilegt margskonar stuðningsefni varðandi nemendur í heilsueflandi grunnskólum, auk nýjustu uppfærslu viðkomandi blaðsíðna í möppunni eða handbókinni fyrir heilsueflandi grunnskóla.
Kafli handbókarinnar um nemendur (pdf-skjal, nóv 2010), með fyrirvara um síðari breytingar sem kunna að verða í ljósi reynslu og ábendinga.
Verkfærakistan - Nemendur
Reglulega er hér bætt við nýju efni, og eru allar gagnlegar ábendingar um efni því vel þegnar.
Kafi handbókar heilsueflandi grunnskóla sem fjallar um Nemendur, réttindi þeirra, þátttöku og skyldur (pdf, nóv 2010), með fyrirvara um síðari breytingar og viðbætaru á efninu í ljósi reynslu og ábendinga.
Fleira:
Barnasáttmálinn - Barnasáttmáli Sameinuðuþjóðanna og umfjöllun um hann.
Umboðsmaður barna á Íslandi - Talsmaður barna og unglinga.
