Nærsamfélagið
Til að ná sem bestum árangri við heilsueflingu og forvarnir í skólastarfinu er mikilvægt að vera í samstarfi við lykilaðila í nærsamfélagi skólans og skólahverfið.
Virkt samstarf milli skóla og annarra í nærsamfélaginu leiðir til þess fremur að allir hafa sameiginlegan skilning á því sem er mikilvægast, hver helstu verkefnin eru og hvaða leiðir eru vænlegastar til árangurs.
Til að átta sig á nærsamfélagi hvers skóla þarf að skoða hvaða stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök eru í skólahverfinu og hvort viðkomandi sé þegar tengdir skólastarfinu og þá hvernig. Kortlagning samstarfsaðila í nærsamfélaginu gefur yfirsýn yfir stöðuna og hugsanleg sóknarfæri til nánara samstarfs.
Hér á síðunn er stuðningsefni varðandi samskipti við nærsamfélag heilsueflandi grunnskóla og viðkomandi kafli í handbókinni fyrir heilsueflandi grunnskóla á pdf formi.
Kaflinn um nærsamfélgið (pdf-skjal, nóv 2010), með fyrirvara um síðari breytingar í ljósi ábendinga og reynslu.
