Heilsueflandi grunnskólar
Lýðheilsustöð vinnur að því, í samstarfi við aðra, að stuðla að og efla grunnskóla til að starfa í anda heilsueflandi skóla.
Yfirlit

Ráðstefna um heilsueflandi skóla, 2. sept. 2011
- Fyrirlestrar og upptökur -
Verkefnisstjóri er Sveinbjörn Kristjánsson.
Í heilsueflandi skólum fer fram skólastarf í anda heilsueflingar þar sem markvisst er unnið að því að efla og stuðla að velferð og góðri heilsu nemenda og starfsfólks.
Heilsueflandi skólar í Evrópu
Lýðheilsustöð vinnur í samræmi við viðmiðunarreglur Alþjóðaheilbrigðismála-stofnunarinnar um heilsueflingu og forvarnir fyrir skóla og stöðin er meðlimur í Samtökum heilsuskóla í Evrópu (Schools for Health in Europe).
HEPS er stuðningsaðili fyrir heilsueflandi skóla
Hjá Lýðheilsustöð hefur m.a. verið starfað að heilsueflandi grunnskóla í gegnum verkefni stöðvarinnar Allt hefur áhrif - einkum við sjálf! og 6 H heilsunnar í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins-skólahjúkrun.
Umgjörð Heilsueflandi grunnskóla
Hér má lesa um hvað þátttaka í heilsueflandi grunnskóla felur í sér (PDF-skjal).
Handbók Heilsueflandi grunnskóla
Nú þegar starfa margir grunnskólar í anda heilsueflandi skólastarfs en aðrir ekki. Lýðheilsustöð hefur unnið Handbók um heilsueflandi skóla sem skólar geta nýtt sér eftir þörfum.
Inngangskaflinn í pdf-skjali.
Efni handbókarinnar og annað fræðsluefni henni tengt, er ætlað til að auðvelda skólum að vinna markvisst heilsueflandi skólastarf. Í handbókinni eru upplýsingar um það sem heilsueflandi skólastarf felur í sér og atriði sem hyggja þarf að þegar skóli hefur ákveðið að starfa í anda heilsueflandi skóla.Í handbókinni eru kaflar um eftirfarandi, auk inngangs:
Nemendur, Mataræði/Tannheilsa, Hreyfing/Öryggi, Lífsleikni, Starfsfólk, Heimili, Geðrækt og Nærsamfélag.
Vísað er á vefsíðu, með ítarefni, fyrir hvern málaflokk og þær er hægt að opna með því smella á viðkomandi myndir hér til hægri.
Umsóknareyðublað Heilsueflandi grunnskóla
Sækið eyðublaðið, smellið bendli á línurnar, fyllið út í tölvunni, prentið út, skólastjóri undirritar eigin hendi og sendið svo Embætti landlæknis, Barónsstíg 47, 101 Reykjavík.

