Mataræði
Vel nærð börn eiga betra með að einbeita sér og mataræði getur haft áhrif bæði á lærdómsgetu og hegðun. Börn verja stórum hluta dagsins í skólanum eða á skólasvæðinu og því er mikilvægt að þau eigi þar kost á hollum og góðum mat.
Auðveldara er að móta hegðun en breyta og því er mikilvægt að byrja snemma að kenna börnum góðar neysluvenjur. Foreldrar og skólasamfélagið gegna þar lykilhlutverki og eru fyrirmyndir barnanna. Einnig er ekki síður mikilvægt að skapa góðar aðstæður og umgjörð fyrir máltíðirnar.
Tannheilsa
Góð tannhirða og reglulegt tanneftirlit stuðla að góðri tannheilsu en ekki búa öll börn við þær aðstæður heimafyrir að hægt sé að fylgja þessu eftir. Skapa má umhverfi og aðstæður í skólum sem stuðla að betri tannheilsu barna og jafnframt betri tannheilsu síðar á ævinni. Mikilvægt er að börnin læri að þeim líður vel með hreinar og heilbrigðar tennur
Hér á síðunni, verður aðgengilegt margskonar stuðningsefni varðandi mataræði og tannhirðu nemenda og starfsfólks í heilsueflandi grunnskólum, auk nýjustu uppfærslu viðkomandi blaðsíðna í handbókinni fyrir heilsueflandi grunnskóla.
Verkfærakistan - Mataræði & tannheilsa
Reglulega er hér bætt við nýju efni og eru allar gagnlegar ábendingar því vel þegnar.
Námsefni / kennsluefni fyrir næringu og tannvernd.
Kafli handbókar heilsueflandi grunnskóla um mataræði og tannheilsu (pdf-skjal, nóv 2010), með fyrirvara um breytingar sem kunna að verað síðar í ljósi reynslu og ábendinga.
Fleira um mataræði:
Handbók fyrir skólamötuneyti: PDF-útgáfa, Pöntunarsíða
Ráðleggingar um mataræði og næringarefni
Íþróttafélög og íþróttamannvirki – Framboð á matvöru
Síðdegishressing í heilsdagsskólum, frístunda- og tómstundaheimilum – ráðleggingar fyrir starfsfólk.
Niðurstöður úr vinnustofum, 2. sept. 2011(Heilsueflandi skólar, ráðstefna á Grand hóteli) (PDF-glærusýning)
Fleira um tannheilsu:
Lifandi kennsluefni um tannburstun
á mörgum tungumálum
T.d. fyrir börn:
- yngri en 3 ára
- 3-6 ára
- 6-12 ára
Tannskemmdir
Áhættuhópar
Videoefni hér á vefnum er á Adbe Flash formati
.
Ef spilara vantar í vafrann má sækja hann hér
