Lífsleikni
Lífsstíl eða lifnaðarhætti má skilgreina sem þá hegðun sem endurspeglar ákveðin viðhorf og gildi einstaklinga eða hópa. Að jafnaði er auðveldara að hafa strax frá byrjun áhrif á viðhorf til hinna ýmsu lifnaðarhátta, sem síðan móta hegðunina, heldur en að breyta eftir á þegar hegðunin er orðinn vani eða lífsstíll.
Undir lífsstíl fellur hér ýmis áhættuhegðun, s.s. neysla löglegra eða ólöglegra vímuefna og tóbaks. Þessi áhættuhegðun er sérstaklega varhugarverð á uppvaxtarárunum þegar nemendur eru að taka út andlegan og líkamlegan þroska á sama tíma og þau eru að móta sín viðhorf og lífsstíl. Skólinn er hluti af því umhverfi sem hefur áhrif á viðhorf og hegðun ungs fólks og því mikilvægt að hann setji sér stefnu og viðmið fyrir þessa lífsstílstengdu þætti.
Hér á síðunni er aðgengilegt stuðningsefni um áhættuhegðun og lifnaðarhætti, m.a. til að sporna við neyslu áfengis, tóbaks og vímuefna, auk nýjustu uppfærslu viðkomandi blaðsíðna í handbókina fyrir heilsueflandi grunnskóla.
Verkfærakista - Lífsleikni
Reglulega er hér bætt við nýju efni og eru allar gagnlegar ábendingar vel þegnar.
Nýjasta útgáfa þess kafla handbókar heilsueflandi grunnskóla sem fjallar um lífsleikni (pdf-skjal, nóv 2010), - með fyrirvara um áframhaldandi breytingar í ljósi reynslu og ábendinga.
Áfengi og önnur vímuefni
Kennslustundir um vímuefni og tóbak.
Tóbak
Tóbakslausir grunnskólar sem inniheldur m.a. stefnu í tóbaksvörnum og viðbragðsáætlun við tóbaksnotkun.
Dæmi um bréf skólastjóra til starfsfólks um tóbaksvarnastefnu skólans
Dæmi um bréf til foreldra/forráðamanna til kynningar á tóbaksvarnastefnu skólans
Dæmi um bréf skólastjóra til foreldra/forráðamanna vegna tóbaksnotkunar nemanda
Dæmi um samning við nemanda um tóbaksleysi á skólatíma og skólaviðburðum
Dæmi um samning um heilbrigðan lífsstíl
Dæmi um skráningareyðublað vegna tóbaksnotkunar
Að hætta að nota tóbak - ráðleggingar
Kennslustundir um vímuefni og tóbak
Fræðsluefni um tóbaksvarnir fyrir grunnskóla - glærur og kennsluleiðbeiningar.
