Sími : 5 800 900
Inngangur

Stefnumótun heilsueflandi skóla

Inngangur

Inngangur handbókar heilsueflandi grunnskóla
(11 bls á pdf-skjali)


Meginatriði heilsueflandi skóla

meginatridi2

  • Stuðlar að góðri heilsu og líðan nemendanna og starfsfólks skólans
  • Bætir námsárangur nemendanna
  • Örvar til þátttöku og ábyrðar með virðingu fyrir lýðræðislegum vinnubrögðum og mannréttindum
  •  Sér til þess að skólaumhverfið sé öruggt og hlúi að nemendum
  • Eflir nemendur í námi og félagslífi og til að vera virka þátttak­endur í hvorutveggja
  • Tengir saman heilsu- og menntamál
  • Tekur á heilsu og vellíðan alls starfsfólks skólans
  • Vinnur með foreldrum og sveitarstjórn
  •  Fléttar heilsumálin saman við daglegt skólalíf, námskrá og árangursmat
  • Setur sér raunhæf markmið sem byggjast á nákvæmum upplýsingum og traustum vísindalegum gögnum
  • Leitast við að gera æ betur með því að fylgjast sífellt með, meta stöðuna og endurmeta aðgerðaráætlanir


Megin viðmið fyrir heilsueflandi skóla

meginvidmid2


  • Heildstæð og skýr stefna skólans nær yfir alla lykilþætti heilsueflandi skóla þ.e. mataræði-tannheilsu, hreyfingu-öryggi, geðrækt, lífsstíl, nemendur, starfsfólk, heimili og nærsamfélag
  • Allir í skólasamfélaginu taka þátt í að móta stefnuna, þ.m.t. nemendur, skólaráð, skólastjórn, kennarar, starfsfólk, foreldrar, skólahjúkrunarfræðingar, fulltrúar nærsamfélags og fleiri eftir þörfum
  • Ábyrgðarmaður er fyrir stefnu skólans og hann hefur með sér stýrihóp. Stýrihópurinn getur ákveðið að sérstakur ábyrgðarmaður sé fyrir hvern og einn þátt stefnunnar
  • Stefnan er samtvinnuð skólastarfinu eins og kostur er, þ.m.t. öllu almennu skólastarfi og öllum námsgreinum
  • Stefnan er kynnt fyrir öllu skólasamfélaginu reglulega, s.s. við skólasetningu, á starfsmannafundum, í skólaráði, á bekkjarkvöldum, á kynningarkvöldum, á vef skólans og í fréttabréfum
  • Allir í skólasamfélaginu taka þátt í að framfylgja stefnunni
  • Í skólanum er heilbrigðisfræðsla á vegum skólaheilsu­gæslunnar þar sem kennt er námsefnið 6 H heilsunnar.
  • Sett hafa verið fram mælanleg markmið og önnur viðmið til að meta hvernig framkvæmd aðgerða gengur og hver árangurinn er. Reglulega er gert ráð fyrir endurmati á áætluninni.


Innleiðingarlíkan Heilsueflandi Grunnskóla

Innleidingarlikan_450


Verkfærakistan
– Stefnumótun heilsueflandi skóla

Reglulega er hér bætt við nýju efni og eru allar gagnlegar ábendingar vel þegnar.

Heilsueflingar-GedraektInngangur handbókar heilsueflandi grunnskóla  fjallar um stefnumótun (pdf-skjal) fyrir heilsueflandi skóla, með fyrirvara um áframhaldandi breytingar í ljósi reynslu og ábendinga.

Tenglar á erlendar síður og heimildir:

Schools for health in Europe

Um verkefnið European Network of Health Promoting Schools

Achieving Health Promoting Schools:
Guidelines for promoting health in schools




Þetta vefsvæði byggir á Eplica